31.08.1942
Efri deild: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (355)

28. mál, kosningar til Alþingis

Eiríkur Einarsson:

Ég ætla ekki að taka þátt í umr. um það, sem hér hefur verið rætt, um meginatriði kosningal., heldur minnast nokkrum orðum á fáein atriði önnur í kosningal., sem mér virðast þess verð, að leidd sé athygli að, og mér finnst, að megi betur fara heldur en fyrir liggur í því frv., sem um ræðir, ef það gæti orðið til þess, að annaðhvort yrðu þau athuguð af hv. n., sem hefur haft málið til athugunar, eða þá, að þeim verði breytt með brtt. frá einstökum þm. En það er ekkert af því stórvægilegt.

Það er þá það fyrsta í 6. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að kjördeildir geti orðið 4 í hreppi. Mér þykir satt að segja þetta nokkuð ríflegt. Ég viðurkenni fúslega, að það er nauðsyn á að opna möguleika á því að fjölga kjördeildum í hreppum, þar sem aðeins 1 kjördeild er, í 2 eða 3, en mér finnst helzt til rúmt að mega hafa þær 4. Ef t. d. hreppi yrði skipt í 4 kjördeildir, þá er því svo háttað, að ég tel, að varla séu til svo margir sæmilega fróðir menn í kosningal. til þess að skipa sæti í kjörstjórn í svo mörgum kjördeildum. Ég álít, að það mundi ekki víða vera þannig, en það gæti verið fyrir hendi. Ég vek máls á þessu til athugunar, hvort mönnum þykir rétt að breyta þessu.

Þar næst vildi ég minnast á atriði, sem ég tók eftir í 57. gr. frv., eins og það nú liggur fyrir. Þar er talað um það, að þegar sendir eru atkvæðaseðlar, þá skuli senda undirkjörstjórn hverri jafnmarga seðla sem kjósendur eru á kjörskrá í hennar kjördeild og minnst 10% fram yfir. Mér finnst, að það ætti að ákveða vissan tiltekinn hundraðshluta fram yfir tölu kjósendanna á kjörskrá í kjördeildinni, en gefa ekki yfirkjörstjórn umráð yfir því, hvort eigi að senda meira eða minna af seðlum út í sveitirnar, þ. e., hvort eigi að leyfa þeim að senda kannske mikið fram yfir þessi 10% umfram kjósendatöluna. Ef þessi 10% fram yfir kjósendatöluna væru fastákveðin, þá væri það sæmilegt fyrir vanhöldum. En að segja: „Þeir eru nú ekki flinkari að kjósa þar en svo, að það er rétt að senda þeim 15% fram yfir,“ tel ég ekki ástæðu til. Ég vil binda þetta við 10%, en ekki leggja þetta undir mat yfirkjörstjórnar.

Í 92. gr. frv. er til tekið, að kjósandi geti valið mann úr kjörstjórninni til að aðstoða sig við kosningu, ef hann er ófær um að framkvæma hana sjálfur sökum þess, sem til er tekið nánar í gr. Mér fyndist réttara að taka fram í þessari gr., að kjörstjórnarmeðlimum sé gersamlega óheimilt að bjóða kjósendum slíka hjálp. Það liggur á bak við ákvæði þessarar gr. sú meining, að það sé óheimilt, en ég álít rétt, að það sé skýrt tekið fram, af því að ég veit þess dæmi, þó að það kannske komi ekki oft fyrir, að örlyndir menn í kjörstjórn og framgjarnir, sem brenna í skinninu af kosningaáhuga, hafa boðið fram slíka hjálp. En slíkt á ekki að eiga sér stað, og því er rétt að útiloka þetta. Og mér virðist, að það eigi að setja í l. ákvæði um sektir við því að bjóða fram hjálp í slíkum tilfellum við kosningar.

Þá er í 96. gr. smávægilegt atriði, sem ég vildi minnast á. Það er um atkvgr. kjósenda, sem ekki búast við að mæta á kjörfundarstað á kjördegi og kjósa því utan kjörfundar. Við fljótlegan yfirlestur finnst mér þar ekki nægilega skýrt tekið fram, hvort þessir kjósendur hafi rétt til þess að kjósa eða atkv. þeirra verði tekin gild á kjördegi, ef þeir svo verða staddir á kjördeginum í kjördæmi sínu. En ef kjósandi, sem hefur greitt atkv. utan kjörfundar, er staddur í sinni kjördeild kjördaginn, en mætir ekki á kjörstað, virðast ákvæði 96. gr. benda til þess, að atkv. hans, það er hann greiddi utan kjörfundar, skuli tekið gilt. Mér virðist eiga að setja skýrar takmarkanir í l. um það, hvort atkv. manns, greitt utan kjörfundar eigi að taka gilt eða ógilda það, ef hann er staddur í sinni kjördeild á kjördegi, en mætir ekki á kjörstað. Virðist mér vera komið í veg fyrir óþarfan glundroða og togstreitu, ef þetta væri skýrt tekið fram í l.

Þá er eitt atriði enn, í 104. gr., sem er ekki stórvægilegt, en ég skil ekki vel, þar sem talað er um öryggi og frágang kjörbókar og að frambjóðendur megi setja innsigli sitt á. — Ég skil sem sé ekki, hvers vegna þar er til tekið, að frambjóðendur eða umboðsmenn þeirra eigi rétt á að setja innsigli sín á enda fyrirbandsins, en kjörstjórnir sem næst hnútnum. En ég hélt, að því nær sem innsiglið væri hnútnum, því tryggar væri gengið frá því. Ef kjörstjórnarinnsiglið bilar, þá er hitt eftir við endann. Ef það ólíklega skeði, að óráðvendni ætti sér stað innan kjörstjórnar, því ætti að ganga skýrt frá þessu lagaákvæði og leyfa að hafa innsigli frambjóðenda eða umboðsmanna þeirra sem næst hnútnum á eftir kjörstjórnarinnsiglinu.

Í síðustu málsgr. þessarar gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Eftir að kjörstjórn hefur gengið frá kjörgögnum samkv. fyrirmælum þessarar greinar, mega hin innsigluðu kjörgögn og innsigli kjörstjórnar eigi vera í vörzlu sama manns.“ Þetta er ekkert öryggisákvæði, þó að það eigi að vera þarna til öryggis.

Og að síðustu gagnvart ákvæðinu til bráðabirgða um það, hvort kjördagur skuli vera einn eða hvort þeir megi vera tveir, þá þykir mér um það ekki nægilega skýrt tekið fram í frv. viðkomandi kauptúnunum sérstaklega, þar sem gert er ráð fyrir einum kjördegi. Það vill svo einkennilega til með þau, að það getur verið ágreiningur um það, hvort kjördeild eigi að heita kauptúnskjördeild, því að kauptún eru töluvert víða svo um landið, að sveitabyggð og kauptún fellur saman í eitt hreppsfélag og þá eina kjördeild, ef hreppnum er ekki skipt í fleiri kjördeildir. Mér finnst þetta ákvæði ekki nógu skýrt. Og mér finnst ekki rétt að láta hina dreifðu byggð gjalda þess, þó að kauptún sé innan kjördeildarinnar á einhverjum stöðum.

Læt ég svo útrætt um þessi atriði, sem ég skýt hér fram til athugunar, ef hv. n. eða einhverjum hv. þdm. þætti ástæða til að gera brtt. um þessi atriði, sem mér þætti betur fara, að væru öðruvísi en í frv. nú.