31.08.1942
Efri deild: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (359)
28. mál, kosningar til Alþingis
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Út af fyrirspurn viðvíkjandi innsigli og lakki, skal ég upplýsa, að kjörstjórnum er séð fyrir sérstöku númeruðu innsigli, svo að fyrir þessu verður að teljast séð. Viðvíkjandi lakki er það að segja, að kjörstjórnir munu sjá fyrir því, en hvort örðugleikar geta verið yfirvofandi á því að fá það, veit ég ekki, en ekki hefur maður heyrt þess getið. Þó mun rétt að athuga það nánar.