02.09.1942
Efri deild: 21. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
28. mál, kosningar til Alþingis
Atvmrh. (Magnús Jónsson) :
Brtt. þær, sem hér liggja fyrir til atkvgr., voru ræddar hér við 2. umr., og því taka flm. þeirra ekki til máls nú. Ég skal ekki gera að umtalsefni brtt. á þskj. 175, enda er frv. ekki mitt frv., og ég tala bara sem 1. þm. Reykv. En ég vil segja nokkur orð um brtt. 161, 3. lið, sem tekin var aftur til 3. umr. Við 2. umr. var numið burt ákvæðið, sem bannaði kosningar eftir kl. 12 að kvöldi og þar með greitt fyrir kosningunni þar, sem mest er fjölmennið. Þetta var óviðkunnanlegur hemill, og um leið var greitt fyrir því, að kosningar til sveita gætu farið fram í 2 daga. Mér þykir vænt um þetta, því að þó að kosningar standi að jafnaði ekki lengur en til kl. 12, er það svo, að í illviðrum er fullerfitt með því húsnæði, sem fyrir hendi er, að ná öllum saman. Mér finnst nokkur aukin ástæða til þess að verða þá einnig við óskum þeirra, sem dreifðara búa, svo að kosningarnar í haust geti farið fram með sem tryggustum hætti. Það, sem ágreiningur er um, er bara aðferðin. Þó að ég sé ekkert hræddur við haustkosningar, eru þær slæmar fyrir frambjóðendur, en í sveitunum er þetta rólegur tími. Hins vegar er óneitanlega mikill munur á vordegi og haustdegi, og þeim, sem orðnir eru vanir við að kjósa vorlangan daginn, hrýs hugur við að eiga að kjósa í skammdeginu. Þess vegna var enginn ágreiningur í n. um að gefa þeim þetta svigrúm.
Aðalkosturinn við brtt. meiri hl. allshn. finnst mér sá, að þar er skýrar gert ráð fyrir, að kosningar eigi að fara fram á aðalkjördaginn, en í frv. var of mikið gefið undir fótinn um að draga kosningarnar þangað til síðari daginn. Samt eru þeir annmarkar á brtt., að ég get ekki fylgt henni. Ef á annað borð á að ákveða í skyndi, hvort ar kosningu verður, er ekki hægt að koma þeim skilaboðum til kjósenda svo fljótt, að kosning geti farið fram næsta dag. Maður getur hugsað sér, að illviðri gangi yfir nokkurn hluta landsins, svo að í fáeinum kjördæmum sé frestað t. d. um viku, en þá er ekki hægt að stöðva talningu allan þann tíma, og kosningar eiga að vera um garð gengnar, áður en nokkuð er uppvíst um úrslit. Þetta er meginatriði, og það er á móti þeim reglum, sem annars er fylgt, nefnilega, að kosningaundirbúningurinn einn komi til greina um að hafa áhrif á úrslit kosninganna. Ég var áður með brtt., en eftir vandlega íhugun er ég kominn á aðra skoðun. Ég tel það draga úr annmörkunum, að aðeins sé um bráðabirgðaákvæði að ræða í eitt skipti.
Ég vildi greina þessa ástæðu fyrir því, að ég get ekki fylgt brtt. meiri hl. allshn., enda þótt ég hefði kosið skýrara orðalag í frv. sjálfu.