03.09.1942
Neðri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (390)

28. mál, kosningar til Alþingis

Sveinbjörn Högnason:

Háttv. Ed. hefur gert nokkrar breyt. á þessu frv., sem hér liggur. fyrir til kosningal., og m. a. um atriði, sem hér í hv. d. var ágreiningur um, og tekið út það, sem þessi hv. þd. hafði samþ., sem eru nokkur atriði. Ég held, að mörg af þeim séu ekki mikils varðandi. En það, sem einkum skiptir máli og aðallega hefur verið barizt um, er, hversu margir kjördagar skuli vera ákveðnir í kosningal. Hv. Ed. hefur samþ. í ákvæðinu til bráðabirgða, að þar sem vitanlegt sé, að ekki sé hægt að kjósa á tilteknum aðalkjördegi — á þeim stöðum, þar sem ekki er hægt að kjósa nema í sex klst. þá skuli leyfilegt, ef kjörstjórnin er öll sammála um það, að halda kosningu áfram næsta dag. En í kosningal. hafði hv. Nd. sett skýrari ákvæði um 97. gr., um að kosningar almennt skuli ekki standa nema einn dag, þannig, að atkvgr. mætti ekki standa lengur en til kl. 12 á miðnætti. Og það er vitanlegt, að til þess er ætlazt samkv. gildandi l. Hins vegar mun hafa komið fyrir í kaupstöðum, þar sem hægt er á tiltölulega skömmum tíma að greiða atkv., að það hefur gengið fram á annan sólarhringinn að greiða atkv. Þess vegna var sett inn í þessa 97. gr. svo hljóðandi ákvæði: „Eigi má atkvæðagreiðsla standa lengur en til kl. 12 á miðnætti.“ M. ö. o., kjördagurinn er aðeins einn.

Það er talinn óþarfi, þegar kosningar fara fram að vorinu, að hafa nema einn kjördag. En hér hefur verið breytt svo til, sem á að gilda við næstu kosningar, að tveir kjördagar eru heimilaðir í sveitum. En það hefur myndazt sá ósiður að taka tvo kjördaga í kaupstöðum. Og nú hefur hv. Ed. viljað fá þá reglu samþ. hreint og beint inn í kosningal. áfram, að þar, sem menn vilji í kaupstöðum, geti menn haft tvo kjördaga, með því að kosningar megi standa fram yfir kl. 12 á miðnætti. Ég sé ekki ástæðu til þess að breyta þessu ákvæði frá því, sem samþ. var hér í hv. d., um að kjördagurinn væri aðeins einn í kaupstöðunum, og vil ég því flytja brtt. aftur við 97. gr. frv. í samræmi við það, sem hv. Nd. samþ. áður um þetta, um, að síðasti málsl. 97. gr., „Nú getur kjörfundur“ o. s. frv., orðist svo: „Eigi má atkvæðagreiðsla standa lengur en til kl. 12 á miðnætti.“ Þessu vil ég breyta þannig, af því að eftir frv., eins og það er nú, er hægt að láta kjörfund standa ekki aðeins tvo, heldur þrjá eða jafnvel fleiri daga; því að þar, sem þúsundir manna eru í sama kjördæmi, er hægt með samtökum að láta kjósendur lengi mæta á lítið eitt minna en stundarfjórðungs fresti. En að hafa þannig lagað fleiri en einn kjördag í kaupstöðunum, þar sem samgöngurnar eru eins greiðar innan þeirra og þær eru, það er gersamlega ástæðulaust.