07.09.1942
Efri deild: 25. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

80. mál, stjórnarskipunarlög

Bernharð Stefánason:

Mér fyrir mitt leyti er alveg sama um það, hvort birt verður aths. frá Framsfl. í útvarpinu á morgun eða ekki. Þetta nál., sem ég hef nú heyrt lesið, er þeim til minnkunar, sem það hafa undirskrifað, og þó að það verði hrakið lið fyrir lið, þá veit ég ekki, hvort minnkun þeirra verður meiri en orðið er. Þeir segja t. d. í þessu skjali, að ekki sé hægt að stofna lýðveldi nema með stjórnarskrárbreytingu. Þessi nýja kenning er sama og að segja, að ekkert lýðveldi hafi enn verið stofnað í heiminum, því að það er ekkert lýðveldi til, nema þá Kína, sem hefur gert stjskr. um leið og lýðveldið hefur verið stofnað. Var ekki stofnað lýðveldi í Þýzkalandi 1918? Var það gert með stjskr.? Ég held, að stjskr. hafi ekki komið fyrr en árið eftir, eða jafnvel ekki fyrr en 2 árum síðar. Var ekki stofnað lýðveldi í Frakklandi 1810, 4. sept., ef ég man rétt, og stjskr. þess ekki samþ. fyrr en 5 árum síðar? Var ekki stofnað lýðveldi í Bandaríkjunum? Þar kom stjskr. ekki fyrr en mörgum árum síðar. Lýðveldin hafa nefnilega alltaf verið stofnuð á þann hátt, að þjóðhöfðinginn hefur látið af völdum, annaðhvort af frjálsum vilja eða verið settur frá völdum og lýðveldi yfirlýst, en stjórnarskrá þess var samin síðar.

Það er því í raun og veru ekki um hreinustu fjarstæðu að ræða, að þessi leið sé fær og eðlileg og að ýmsu leyti heppileg.

Annars er það einkennilegt hjá hv. 5. þm. Reykv., sem er prófessor í stjórnlagafræði, að hjá honum kemur fram sú kenning, sem, ef rétt er, gerir það óþarft að samþ. þetta frv. Hann sagði, að Íslendingar hefðu tekið yfirstjórn mála sinna í sínar hendur og sú skipun yrði látin standa, þar til Íslendingar hefðu gengið frá henni á stjórnskipulegan hátt.

Ef þetta er rétt, þá þyrfti ekki að afhenda konungi og utanrmrh. Dana völdin, þó að friður væri saminn, heldur hefði verið hægt að halda því, er þegar er fengið, þangað til formlega væri gengið frá sambandsslitum á tilsettum tíma. M. ö. o. er ónauðsynlegt eftir þessu að samþykkja þetta frv.

Það er ekki ætlun mín að fara að ræða nál. þetta efnislega, því að búið er að ræða mál þetta mikið í dag, en mér finnst það vera hæfilegur endir á öllu því athæfi, er þessi stj. hefur staðið að, allt frá því að hún tók við völdum og beitti sér fyrir kjördæmamálinu. Mér finnst þetta nál. vera hæfilegur endir á því öllu saman og birta það svo í útvarpi á ódrengilegan og ósanngjarnan hátt.

En ég treysti því, að þjóðin kunni að meta þetta hátterni, og um annað kæri ég mig ekki.