20.08.1942
Neðri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (473)

51. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Jörundur Brynjólfsson:

Ég hef nú ekki hugsað mér að láta mjög mikið til mín taka um þetta mál. En það er eitt atriði, sem ég óska að flytja brtt. við. Það er sá liður í brtt. n., þar sem til er tekið, að á Húsavík skuli reist 5 þús. mála verksmiðja, sem er 4. tölul. 1. brtt. á þskj. 84, og brtt. mín er um það, að í staðinn fyrir „5 þúsund“ komi :„10 þúsund“.

Mér var tjáð, að stjórn Síldarverksmiðja ríkisins hefði átt tal við forustumenn kauptúnsins um stækkun á þessari verksmiðju. Nú standa þannig sakir um höfn á Húsavík, að það á nokkuð langt í land, að hún verði góð, og þarf til þess mannvirki, sem kosta allmikið fé. Eigi að síður er það verk talið nauðsynlegt, og byrjað er á framkvæmdum, og verður til þeirra vandað, svo að eðlilegt er, að þá sé að því stefnt, að framleiðsla verði þar að því búnu sem mest, til þess að mannvirkin komi að notum. Ég leyfi mér því, fyrir hv. þm. S.-Þ. að flytja skrifl. brtt. um hækkun upp í 10 þús. mál á þessum stað. Er það af því, að líklegt er, að þingið fari að styttast og eigi sé tími til að afgreiða frv. í öðru formi en það fær hér í deildinni.