24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (488)
51. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Frsm. (Finnur Jónsson) :
Ég og meiri hl. sjútvn. getum ekki fallizt á, að þessi brtt. verði samþ., vegna þess að við teljum mjög sæmilega séð fyrir móttöku þess síldarafla, sem líklegt er, að komi á Húnaflóa, með þeim tveimur mjög stóru einkaverksmiðjum, sem nú eru á Djúpavík og Ingólfsfirði, þegar Skagaströnd kemur svo þar til viðbótar, og sé því ekki ástæðu til að fara að bæta þar einni verksmiðju við, sem þar að auki mundi liggja heldur illa við fyrir veiðiskip. Það má segja um fjölda marga staði, eins og hv. flm. sagði um Hólmavík, að það skaði ekki, þó að heimildin sé til í l. En ef hnýtt yrði við frv. upptalningu á svo og svo mörgum stöðum, gæti árangurinn orðið sá, að frv. næði ekki fram að ganga á þessu þingi. Með þessum rökum vil ég leggja mjög á móti því, að gerðar séu þessar eða aðrar breyt. á frv.