24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (490)

51. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Bjarni Bjarnason:

Ég vil leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. við þetta frv.

Þegar þetta mál var til 2. umr., bar hv. 1. þm. Árn. fram brtt. um, að bræðslustöðin á Húsavík yrði stækkuð um 5000 mál, þ. e. a. s., að hún yrði 10000 mál í stað 5000. D. hefur ekki fallizt á þessa till., en þar sem mér finnst liggja mjög skýr rök fyrir, að hún sé réttlát, ætla ég að leyfa mér að bera, fram eins konar miðlunartill. um, að í stað 5000 komi 9000. Höfuðrökin fyrir þessari brtt. eru þau, að eftir því sem mér er sagt, hefur bræðslustjórnin lagt til, að Húsavíkurverksmiðjan verði 10000 mál að stærð, en mér finnst það höfuðatriði, hvað bræðslustjórnin leggur til í þessu efni.

Enn er þess að geta, þó að hv. þdm. viti það nú allir, að þarna eru einhver beztu fiskimið landsins og ágætur staður til að leggja upp síld, og ég vænti þess, að þó að hv. d. geti ekki fallizt á 10 þúsund mála verksmiðju þarna, vilji hún fallast á miðlunartill. mína, sem ég ber fram skriflega og leyfi mér að afhenda forseta.