26.08.1942
Efri deild: 15. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (502)
51. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Gísli Jónason:
Með tilvísun til þess, að þetta mál komi fyrir sjútvn. til athugunar, þá vil ég benda á nokkur atriði í frv. og vildi gjarnan fá að heyra álit hv. dm. um þau. Það fyrsta, sem ég vil benda á, er það, að mér finnst allmikill munur á frv. hæstv. ríkisstj. á þskj. 64 og á frv. á þskj. 124 nú, eins og það kemur frá hv. Nd., og ég veit ekki, hvort hv. þm. hafa gert sér grein fyrir því. Á þskj. 64 stendur, að ríkisstj. sé heimilað, svo fljótt sem ástæður leyfa, að láta reisa síldarverksmiðjur, en á þskj. 124 er þessu breytt í beina fyrirskipun, þannig að ríkið láti byggja o. s. frv. Á þessu finnst mér vera mikill efnismunur. Í 2. mgr. 1. gr. á þskj. 124 er enn fremur fyrirskipað, að ríkið láti reisa verksmiðju til herzlu síldarlýsis, en þar er ekkert áætlað, hvað sú verksmiðja muni kosta. Mér finnst þessar framkvæmdir vera, svo stórar, að ekki megi skipa ríkisstj. og láta framkvæma þær óundirbúið.
Á þskj. 64 er gert ráð fyrir 30 þús. mála afköstum verksmiðjanna á sólarhring, og þar er lánsheimildin 25 millj. kr., en á þskj. 124 eru afköstin hækkuð upp í 39 þús. mál, en lánsheimildin lækkuð niður í 10 millj. kr. — Mér finnst mjög einkennilegt að lækka lánsheimildina um leið og afkastagetan er hækkuð.
Viðvíkjandi því, hvar verksmiðjurnar skuli byggðar, þá finnst mér aðeins koma til greina að byggja þær þar, sem verksmiðjustjórnin leggur til á hverjum tíma, en ekki á einhverjum og einhverjum stöðum, af því að nógu harðskeyttir þm. fái því framgengt. Sem sagt, að verksmiðjustjórnin í samráði við viðkomandi ráði leggi til, hvar verksmiðjurnar skuli reistar, því að með því yrði engum gert rangt til. Verksmiðjan á Sauðárkróki verður byggð, eftir því sem sagt er, af því að þar eru hafnarmannvirki, sem ekki bera sig, og verksmiðjan verður reist á Húsavík af þeirri ástæðu, að þar vantar hafnarmannvirki. Mér finnst þetta ekki fullkomin rök fyrir því, að verksmiðjurnar séu byggðar á þessum stöðum.
Ég held, að það sé ekki fleira, sem ég þarf að taka fram, nema hvað ég er samþykkur því, að sem flestar verksmiðjur verði reistar, þó að ég líti hins vegar svo á, að þær framkvæmdir eigi að liggja í höndum einstaklinga, en um það ætla ég ekki að ræða hér.