26.08.1942
Efri deild: 15. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (504)
51. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Hermann Jónasson:
Hv. þm. Barð. óskaði eftir því sem formaður sjútvn. að heyra álit hv. d. um þetta frv., og ætla ég nú án þess að tefja umr. um of að skýra frá minni afstöðu til þess.
Ég hygg, að hæstv. atvmrh. hafi gert grein fyrir því í síðustu ræðu sinni, að mjög lítill munur sé á frv. upprunalega og eins og það liggur nú fyrir, eftir að það kom frá hv. Nd. — Ég tel einnig, að munurinn sé lítill og að í báðum tilfellum sé um heimild að ræða fyrir ríkisstj., enda þótt það sé öðruvísi orðað á þskj. 124. Ég hygg meira að segja, að þetta frv., eins og það er nú, sé meiri takmörkunum háð en frv. upphaflega, því að í 2. gr. þess nú er ríkisstj. heimilt að taka 10 millj. kr. lán til byrjunarframkvæmda, en áður var um 25 millj. að ræða til alls verksins, svo að ríkisstj. þarf síðar að koma til Alþ. og fá meiri lánsheimildir til frekari framkvæmda. Viðvíkjandi byggingu á verksmiðju til herzlu síldarlýsis, þá er það greinilega tekið fram, að framkvæma skuli það, þegar rannsóknir sýna, að það sé tímabært.
Um staðina, sem valdir hafa verið, skal ég ekki dæma, en ég er sammála hv. þm. Barð. um, að framkvæmdir beri að miða við það, sem telja má hyggilegt frá sjónarmiði heildarinnar.
Ég kom til Skagastrandar í sumar og sá höfn þá, sem verið er að vinna að þar, og þá rak ég mig á einkennilegt fyrirbrigði, sem ég vona; að verði hægt að ráða bót á. — Þannig er, að sjórinn hefur borið sand inn í höfnina, og kveður svo rammt að þessu, að þar sem áður gátu legið nokkuð stór skip, þar er nú þurrt land. Nú er verið að byggja garð innan við höfnina til þess að fyrirbyggja þetta, en menn eru þó hræddir um, að það takist ekki, en vona samt hið bezta. Hvort verksmiðjan þar er miðuð við hafnarmannvirkin, skal ég ekki dæma um.
Viðvíkjandi Hólmavík vil ég segja það, að ég tel að mjög vel athuguðu ráði, að það sé einhver bezti staður fyrir verksmiðju, sem fundinn verður. Einstaklingar ætluðu að reisa þarna verksmiðju í samráði við mig, en töldu sér ekki fært að byggja hana nema með 5–600 mála afköstum, og þá reis ég beinlínis gegn því. — Ég vil benda á í sambandi við þennan stað, að þar eru ágæt skilyrði, bæði góð bryggja og ágæt höfn. Þangað er lítið lengri sigling með síld en inn til Djúpavíkur, og þar að auki veiðist síldin oft fyrir innan Hólmavík, á Bitrufirði, t. d., hafa margir togarar fengið aðalveiði sína. Enn fremur er stutt að sækja þaðan til veiða við allt Norðurland. — Ég lít svo á, að skilyrði séu eins góð á Hólmavík og á nokkrum öðrum stað. Og að öðru leyti eru á þessum stað beztu skilyrði fyrir búskap. Þar er einhver bezta fjárbeit, sem til er á landinu, og þurfum við ekki að fara í neinar grafgötur með það vegna skýrslna, sem við höfum fengið um þunga dilka, sem slátrað er af þessu svæði. Þar er einnig töluvert af ræktanlegu landi og ágætt upprekstrarland. Þarna er enn fremur lítið að gera á þeim tíma, sem síld veiðist. Hins vegar eru þarna á öllum öðrum tímum ársins einhver hin allra fiskisælustu mið á fjörðum inni við landið. Þarna er fiskurinn allan veturinn. Þess vegna getur fólk, sem þar er, haft atvinnu við fiskveiðar og landbúnað á öðrum tímum ársins en síldveiðitímanum. Þessi staður er því að öllu samanlögðu einhver búsældarlegasti staður, sem til er á landinu. Það hefur verið svo þarna á undanförnum árum, að menn hafa að vetrinum hvað eftir annað tvíhlaðið báta á firðinum á sama degi, og meira að segja stundum við luktarljós á bryggjunni. Og þegar tekið er tillit til alls þessa, þá hygg ég, að það megi teljast rétt, að það sé frá almennu sjónarmiði séð rétt að byggja síldarverksmiðju á þessum stað. Og það er rétt hjá hv. þm. Barð. (GJ), að það á fyrst og fremst að taka tillit til þess, þegar um byggingu nýrra síldarverksmiðja er að ræða, hvað hagkvæmt er frá almennu sjónarmiði.