31.08.1942
Efri deild: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

51. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Atvmrh. (Magnús Jónsson) :

Ég get sagt um þessa till. það sama og fyrri till. frá þessum tveimur hv. þm. um að bæta inn í frv. Dalvík og Hrísey, að ég verð að fara fram á, að þeir taki hana aftur, til þess að frv. geti náð fram að ganga. Ég ætla ekki að fara að þrátta við hv. flm. um það, hvort rétt kunni að vera að koma upp verksmiðjum á þessum stöðum einhvern tíma síðar meir. Það getur vel verið rétt, að þar séu góð skilyrði til þess konar atvinnurekstrar. En mér sýnist svo mikið áætlað í frv., að ekki muni vera rétt að bæta þar á, því að frv. yrði þá að fara aftur til Nd., og þar mundu eflaust koma fram margar till. um nýja staði, er ættu ef til vill sama rétt á sér. Ég fer því fram á það við hv. d., að hún samþykki ekki þessa till., ekki af því að ég sé á móti Ólafsfirði fremur en Dalvík eða Hrísey, heldur til þess, að frv. geti náð fram að ganga.