12.08.1942
Neðri deild: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

24. mál, raforkusjóður

Jón Pálmason:

Út af því, sem hv. síðasti ræðumaður vék að tekjuafgangi ársins 1941, vil ég benda á, að ég ætlaðist til, að miðað yrði við 1942, en það kemur til athugunar í n. Það er vafasamt, hvort 6 millj. kr. er óráðstafað 1941.

Það kom í ljós hjá tveimur þm. Framsfl., að þeir meta það nú meira að sýnast fyrir kjósendum en að hafa mál fram. Það hefur ekki einasta komið fram í ræðum þeirra, heldur og í blöðum og á fundum, að þeir reyna að halda fram þeirri blekkingu, að Sjálfstfl. standi í vegi fyrir framkvæmd raforkumálsins í sveitunum. Þetta er sprottið af ágreiningi milli flokkanna um tekjuöflun til raforkusjóðs, því að hvergi hefur bólað á andstöðu gegn raforkumálum sveitanna. Hitt er sitt hvað, hvaða leið er farin til framkvæmda. Það er alveg rétt, að meiri hl. Sjálfstfl. og aðrir þingflokkar hafa verið andvígir því að leggja skatt á þau skuldugu fyrirtæki, sem hafa staðið undir öðrum raforkuverum. Á þingi 1940 var flutt frv. af nokkrum sjálfstæðismönnum, sem hafði þá breyt. að geyma, að ríkissjóður einn stæði straum af þessu, og oft hefur það komið fram á þingi í meðferð þessa máls, að ekki hefur staðið á Sjálfstfl. né Alþfl. að koma málinu fram.

Hv. þm. V.-Sk. (SvbH) var að tala um ósamræmi í orðum og gerðum okkar sjálfstæðismanna, en það er ekki rétt hjá þessum hv. þm. Mér finnst mjög eðlilegt, að ríkisstj. standi straum af þessum útgjöldum og hið opinbera leggi til þessa máls eftir föngum. Ég tel óþarft að bíða eftir, að mþn. verði kosin til þess að fjalla um þetta mál og fundinn verði tekjustofn til þess að hrinda því í framkvæmd, vegna þess að sá stofn er fyrir hendi, sem sé almennur tekjustofn, sem ríkið leggur til. Að vísu kostar það ekkert smáræði að koma rafmagni á alla bæi í sveitum. Það skiptir án efa hundruðum milljóna, en ætlunin er, að þetta verði framkvæmt smátt og smátt, en ekki allt í einu. — Ég vænti þess, að þeir menn, sem meira leggja upp úr blíðmælgi við kjósendurna en framkvæmdum, fylgi máli þessu afdráttarlaust nú á Alþingi.