05.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (6)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 2. kjördeildar (Emil Jónason) :

2. kjördeild hefur fengið til athugunar kjörbréf þeirra 17 þm., sem sæti hlutu í 1. kjördeild. Hefur hún yfirfarið þessi gögn og ekkert fundið við þau að athuga. Þau eru öll með undirskriftum eins og vera ber og gengið að öðru leyti frá þeim á venjulegan hátt, og hefur engin kæra komið yfir kosningu þessara þm. Þó þykir kjördeildinni rétt að vekja athygli á því, að frá tveimur þm. lágu ekki fyrir kjörbréf, heldur um annan yfirlýsing frá landskjörstjórn, að kjörgögn, sem henni hefðu borizt, bæru með sér, að hann hefði verið kosinn á þing, það er Bjarni Bjarnason. Um hinn þm., Jörund Brynjólfsson, lá fyrir símskeyti frá skrifstofu Árnessýslu, að hann hefði verið kosinn á þing. Kjörbréf þessara manna lágu ekki fyrir, en kjördeildin sá enga ástæðu til að vefengja þessi gögn. Leggur hún því til, að kosning allra þessara þm. verði tekin gild.