01.09.1942
Efri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (600)
24. mál, raforkusjóður
Jónas Jónsson:
Þetta frv. á þskj. 149 er, að ég held, mjög góður partur úr frv., en meira er það ekki. Það vantar enn undirstöðuatriði málsins, en frv. er samt vel þess vert, að það verði samþ. eins og það er, eins og á stendur nú í þinglokin, og síðar má setja þennan part úr lögum inn á sinn stað í heildarlöggjöf, sem setja verður um málið. Hér er gert ráð fyrir að festa allverulega upphæð af tekjum yfirstandandi missira til raforkumála. Þar sem enginn veit, hve lengi hið peningalega góðæri stendur, er nauðsyn að afla nú fjár til þessara framkvæmda, eftir að um hægist aftur. Mesti galli frv. er sá, sem hv. síðasti ræðumaður minntist á, að ekki er sagt, hvernig vinna ber að framkvæmdum. Brtt. hans, sem er til bóta, snertir ofurlítið það efni, en vitanlega verður síðar að gera því full skil. Frv. virðist byggt á þeirri hugsjón, að hægt sé að leysa málið með því að hjálpa til að koma upp stórum raforkustöðvum og svo ætti almenningur að vera fær um að annast rafleiðslur þaðan auk þátttöku sinnar í stofnkostnaði stöðvanna. Það er náttúrlega fjarstæða, að Alþ. muni nokkru sinni eftirláta það nokkurri ríkisstj., sem ráðgert er í 4. gr., að setja reglugerð um allar framkvæmdir slíks stórmáls, heldur er það löggjafaratriði. Þar sem þessi lög eru nú sett til bráðabirgða einungis, þarf ekki að ræða mjög einstök atriði. Ef það er meining sumra hv. þm., að fyrir þetta fé eigi að raflýsa kaupstaði eigi síður en sveitir og kauptún, vona ég, að þeir skilji, að það mundi hrökkva skammt. Rvík þarf t. d. mjög aukna raforku. Norðfjörður hefur t. d. aðeins rafmagn frá olíumótor — og sama er að segja um fjölda þorpa, t. d. Eyrarbakka og Stokkseyri.
Hér við Sogið er búið að gera dýra stöð. En hvað hefur Árnessýsla fengið upp úr því? Hvað hafa þorpin Eyrarbakki, Stokkseyri, Hveragerði og Ölfusárbrú fengið upp úr því? Þessi 4 þorp hafa ekki fjármagn til að koma rafmagninu til sín. Hugsum okkur, að búið væri að gera stöð í Rangárvallasýslu og veita styrk til hennar. En þá þyrfti samt að taka mikið lán, til þess að hún kæmi sýslunni að gagni. Og hvar ætti að taka það lán? Stærsta bæjarfélag landsins, Rvík, hefur átt erfitt með að fá lán til rafmagnsveitunnar og hitaveitunnar, þó að úr rættist. Ein efnaðasta sýsla landsins, Rangárvallasýsla, hefur fengið 25 þús. kr. styrk. Hvaða gagn er að því? Ég get tekið Suður-Þingeyjarsýslu til dæmis. Þar er stórt orkuver í miðri sýslunni. Í nokkurri fjarlægð frá því eru 10 bæir, þar sem túnin ná svo að segja saman. Ég hef beitt mér fyrir því, að þeir gætu fengið raforku frá stöðinni, en það kom í ljós, að það mundi verða of dýrt, jafnvel við þessi góðu skilyrði.
Nú gæti það sýnzt svo af þessum rökum mínum sem ekki mundi borga sig að leiða rafmagn um landið, en svo er þó ekki. En það verður aðeins að taka miklu stærri tökum en gert er með frv. Það, sem gott er í frv., er það, að tekin skuli frá nokkuð stór upphæð og lögð í raforkusjóð. En hitt er óhjákvæmilegt, að skipuð sé n. til að rannsaka raforkumál landsins í heild, eins og farið er fram á í till. okkar. Þetta hefur ekki enn verið hugsað sem landsmál, heldur í pörtum. Það hefur verið hugsað sem eins konar snuð, sem litlir krakkar eru látnir fá. Það, sem fyrst verður að gera, er að rannsaka skilyrðin til þess að leiða rafmagn um landið. Tökum Eyjafjörð til dæmis. Akureyri hefur haft litla rafstöð, sem nægði hvergi nærri, og það varð að fara langt austur í Þingeyjarsýslu til þess að fá næga orku, en þar er 35000 hestafla foss. Siglufjörður vill líka fá stöð, en þar er aðeins 4000 hestafla foss. Það er eins og dropi í hafið miðað við þarfir bæjarins, svo að þeir hafa alls ekki reynt að ýta undir fólk að nota rafmagn til hitunar, þó að stöðin eigi að kosta 8 millj. kr. og sveitirnar þar í kring, Fljót og aðrar, verða rafmagnslausar eftir sem áður. Í Norður-Þingeyjarsýslu er mikil vatnsorka, þar sem er Jökulsá á Fjöllum, en sú orka er óviðráðanleg nema fyrirtæki, sem kosta mundi tugi millj. kr. Það má því segja, að Norður-Þingeyjarsýsla hafi ekkert vatnsafl, sem auðvelt sé að virkja. Suður-Þingeyjarsýsla hefur aftur á móti mikið, Eyjafjarðarsýsla hefur lítið og sama máli gegnir um Skagafjarðar- og Húnavatnssýslur. Nú eru 130 bæir í Eyjafirði fyrir framan Akureyri. Hvert eiga þeir að sækja rafmagn? Eða Svarfaðardalur, blómlegt hérað? Eiga Svarfdælingar að fara allt austur í Laxá? Hvernig er hægt að leysa þetta rafmagnsmál nema með samvirkjun? Ég hef tekið þessi dæmi, af því að þau sýna, að hér er heill landsfjórðungur, sem yrði að fá mestallt rafmagn sitt frá einni stöð. Þetta mál verður að taka svo stórum tökum. Það verður að vera landsmál. En í þessu frv. er það ekki tekið þeim tökum. Það er ekkert landsmál, þó að ein og ein sveit fái rafmagn. Ég álít allt annað einskis vert en það, að málið sé tekið sem ein heild. Ríkið verður að koma upp rafstöðvum og leggja leiðslurnar á bæina og verður það þá að selja rafmagnið því verði sem nauðsynlegt er. Ég álit, að allt annað sé kák. En auðvitað þokast menn ekki að slíkri heildarlausn á skömmum tíma. Það mun taka mörg ár að koma mönnum í skilning um nauðsyn hennar. Eitt blað hér í bæ, sem gefið er út af nokkrum stríðsgróðamönnum, hefur til dæmis auglýst skilning sinn með því að segja, að nú eigi að fara að raflýsa fátæktina. Hví segja þeir þetta? Þeir hafa rafmagn og þau þægindi, sem því fylgja, en þeir vita, að til þess að koma þessu máli fram verður að taka af stríðsgróða þeirra. En þetta verður áreiðanlega gert, og stoðar ekki fyrir þá að þrjózkast við. En það sýnir manndóm þeirra, er þeir viðhafa slík orð um málið, meðan þeir sitja sjálfir við rafmagn og hitaveitu.
Ég er sammála till. hv. þm. Seyðf. um það, að ekkert vit er í að taka staði eins og Norðfjörð og Akranes út úr og segja, að þeir eigi ekki að fá rafmagn. En um þá staði þarf ekki sérstök l., ef málið verður tekið sem ein heild, því að þeir kæmu þar auðvitað inn í alveg sjálfkrafa.