01.09.1942
Efri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í B-deild Alþingistíðinda. (602)

24. mál, raforkusjóður

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Um skrifl. brtt. frá hv. 10. landsk. hef ég það að segja, að ég sé ekkert á móti því, að hún sé samþ. Annars skildi ég 1. gr. frv. svo, að veiturnar rúmuðust innan hennar. Mér hefur verið sagt, að raforkuver sé víðtækara en raforkustöð og nái líka yfir veiturnar. Ég veit ekki, hvort þetta fær staðizt málfræðilega. En ég get samt fallizt á brtt. hv. 10. landsk., því að ég sé enga ástæðu til að útiloka rafveitur.

Ég hef samkv. tilmælum hæstv. atvmrh. breytt till. minni þannig, að á eftir orðunum „í sveitum“ í 1. gr. frv. komi: og hinum smærri kaupstöðum.

Hv. þm. Dal. sagði, að ekki væri mikil þörf á því að láta þetta ná til kaupstaðanna, því að þeir gætu yfirleitt hjálpað sér sjálfir. En þetta er ekki rétt. T. d. er á Seyðisfirði rafstöð, sem orðin er svo lítil, að ekki er við hlítandi. Þarf nauðsynlega að stækka hana, og er þetta orðið eitt mesta vandamál bæjarfélagsins.

Ég hefði gjarnan viljað ræða sumt í ræðu hv. þm. S.-Þ., en skal stytta mál mitt, því að tími er nú orðinn naumur. [Niðurlag ræðunnar vantar frá þingskrifara.]