03.09.1942
Neðri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
24. mál, raforkusjóður
Sigurður E. Hlíðar:
Ég held, að bezt sé fyrir þá, sem vilja þessu máli vel, að gera sem fæstar brtt. Það gæti orðið til þess, að málið dagaði uppi. Ég get þó fallizt á, að þessi brtt. sé ekki til batnaðar. En í sambandi við þau ummæli hv. þm. V.-Húnv., að með þessu væri kaupstöðunum einum hyglað og að þeir mundu ganga fyrir, þá vil ég draga mjög í efa, að svo sé. Ég vil aðeins segja fyrir Akureyri, að ég geri ekki ráð fyrir, að hún komi inn undir þessi l. Sá bær hefur nú afgert kaup á vélasamstæðu til viðbótar upp á 400 hestöfl, og ég mótmæli því, að ríkið hafi lagt einn einasta eyri til rafveitunnar á Akureyri. En það eru alltaf þessar eilífu eftirtölur á ríkisábyrgðum, enda þótt þær séu allt annars eðlis en beinn styrkur. Það getur ekki minna verið en að ríkið gangi í ábyrgð, þegar sýnt er, að fyrirtækið getur staðið undir sér sjálft. Það er litt sæmandi, að nokkur þm. skuli hafa þetta orðfæri og telja eftir ríkisábyrgðir til bæjanna í þessum efnum. Það mun áreiðanlega ekki vera meiningin með þessu frv. að styrkja kaupstaðina á kostnað sveitanna. Ég kann nú ekki við að tönnlast á þessu orði „dreifbýli“, en nota hið gamla og góða íslenzka orð, sveitir. Ég geri ráð fyrir, að séð verði fyrir sveitunum, en ekki kaupstöðunum, með þessu frv. Stærri kaupstaðirnir eru búnir að fá rafmagn og þurfa aðeins á ríkisábyrgðum að halda til þess að auka við orkuver sín, er standa undir sér sjálf.
Ég tel því ekki, að bera eigi fram brtt. í málinu, ef menn vilja því vel, og að það fái fulla afgreiðslu nú.