24.08.1942
Efri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í C-deild Alþingistíðinda. (639)
46. mál, bifreiðalög
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég get vel fallizt á þessa brtt. hv. samgmn. Eins og ég skýrði frá við 1. umr. þessa máls, var litið svo á í dómsmrn., að það hefði verið frekar fyrir tímaskort á síðasta þingi heldur en fyrir andstöðu, að samhljóða frv. þessu náði ekki fram að ganga á því þingi. Hins vegar voru meðmæli vegamálastjóra með þessari breyt. á l., sem brbl. fela í sér, en vegamálastjóri er ráðunautur ríkisstjórnarinnar í þessum málum. Og eins og hv. frsm. n. veik að, minnkar eftirspurnin eftir þessum réttindum fyrir 17 ára unglinga. Hins vegar er ríkisstj. það ekkert kappsmál, að þetta frv. nái gildi sem frambúðarskipulag, og getur að ýmsu leyti fallizt á þau rök, sem fram hafa verið flutt af nefndinni.
Hins vegar skal ég svona frá eigin brjósti víkja að því, að þó að varasamt væri að láta ýmsa af 17 ára unglingum fá réttindi til að aka bifreiðum, þá á það náttúrlega engu síður við um menn á ýmsum öðrum aldri. Jafnvel kynni ekki síður að vera ástæða til að taka í taumana gagnvart þeim, sem komnir eru á fullorðins ár. Því að svo varasamt sem það kann að vera að treysta unglingum til að stýra bifreið í því öngþveiti, sem er á vegum landsins um akstur, þá hygg ég ekki síður ástæðu til að álíta varasamt, að veita þeim ökuleyfi, sem ætla að byrja að aka bifreið, eftir að þeir eru komnir á fullorðins ár, eftir því sem reynslan hefur sýnt. Hins vegar ætti að mega herða á prófkröfunum til þess að tryggja, að ekki fái aðrir að stýra bifreið en þeir, sem fullkomlega eru færir um að leysa stjórn vörubifreiða af hendi.
En, sem sagt, ég get fallizt á brtt. n. og tel þá sjálfsagt, að ekki komi til mála framvegis að veita meiri undanþágur fram yfir það, sem l. ákveða um þetta.