12.08.1942
Efri deild: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (673)
11. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Flm. (Haraldur Guðmundsson) :
Án þess að taka að mér að svara fyrir hæstv. stj., vil ég segja það út af því, sem hv. þm. Str. sagði, að ég álít alveg ógerlegt að láta leiðréttingu á kjörum embættismanna og sýslunarmanna ríkisins bíða eftir, að lokið sé heildarathugun á launakjörum embættis- og starfsmanna yfirleitt. Það hefur lengi verið á döfinni. Ef einhver athugun hefur þegar verið gerð, er henni ekki svo langt komið, að ekki þurfi langan tíma enn, og engar líkur til niðurstöðu fyrr en á næsta ári. (HermJ: Hefur þm. athugað, hvað þetta eru margar milljónir?). Það er ekki svo auðvelt að segja, — fer eftir því, hvað dýrtíðin vex og vísitalan verður. En gera má ráð fyrir, að það verði varla undir 14–1500 þús. kr., miðað við till., sem hér er um að ræða. (HermJ: Ég held það sé meira.) Ég hef ekki nákvæmar tölur tiltækar. En aðalatriðið er það, að ég tel ógerlegt, eins og þessu máli er komið, að bíða eftir niðurstöðu í launamálunum almennt.