28.08.1942
Efri deild: 17. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (695)

65. mál, notkun byggingarefnis

Frsm. (Bjarni Benediktsson) :

Ég skal ekki fara mörgum orðum um þessar brtt., sem fyrir liggja. Hv. þm. Str. (HermJ) gerði grein við 2. umr. fyrir sínum brtt. En eins og ég sagði þá, álít ég, að þar hafi verið tekið nokkuð öðruvísi á þessu máli heldur en ég tel vænlegt til framkvæmdar eða gagns. Og ég er hræddur um, að með þeirri skipun, sem hann ráðgerir, verði árangurinn af þessari löggjöf lítill eða enginn, auk þess sem mér sýnist, að gjaldeyris- og innflutningsnefnd hafi í hendi sér að gera allar þær ráðstafanir, sem hann gerir ráð fyrir. Ef hans brtt. verður samþ., þá sé ég ekki annað en að frv. sé óþarft og nái ekki framar en nú eru til ákvæði í l. fyrir.

Það, sem fyrir mér vakti með flutningi þessa máls, er, að hvert sveitarfélag hefði heimild til nokkurra afskipta af því, hvernig því byggingarefni skyldi varið, sem, hvort sem er, er ætlað til notkunar innan þess. Það er vitað mál, að sveitarstjórnunum er bezt um það kunnugt, hverjar byggingar eru nauðsynlegastar innan takmarka síns sveitarfélags. En sveitarstjórnirnar eru eftir brtt. hv. þm. Str. (HermJ) útilokaðar frá því að geta haft þau afskipti, og vil ég því leggja á móti þeim brtt. Aftur á móti hef ég borið fram brtt. til þess að gera það skýrara en áður, að ætlunin er ekki sú að kyrrsetja í kaupstöðunum það byggingarefni, sem til kaupstaðanna er flutt, en þó er ekki ætlað til notkunar þar.

Ég veit, að hv. þm. Barð. (GJ) hefur ekki nema gott í huga með sinni brtt. En ég tel, að það, sem hann vill, að vinnist með þeirri brtt., það hafi gjaldeyris- og innflutningsn. á sínu valdi að framkvæma með úthlutun leyfa. En ég tel, að þessar brtt. mínar fullnægi því sjónarmiði, sem hv. þm. Barð. setur fram. Annars er það ekki ætlunin, að þetta eftirlit sé miðað við það að veita leyfi fyrir hverju borði og hverjum planka út af fyrir sig, heldur hinu, hvað framkvæmt sé í byggingamálum á hverjum stað, og að n. hafi það hlutverk með höndum að ákveða, hvaða skipabyggingar, íbúðarhúsabyggingar og verksmiðjubyggingar eru nauðsynlegastar. Ég hygg, að slík n. geti gert mikið gagn. En ég álít, að brtt. hv. þm. Str. og hv. þm. Barð. nái ekki tilgangi sínum, og er ég á móti þeim.