04.09.1942
Efri deild: 23. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í C-deild Alþingistíðinda. (703)
74. mál, einkasala á bifreiðum, rafvélum, rafáhöldum o.fl.
Flm. (Bjarni Benediktsson) :
Ég hef leyft mér að flytja þetta frv. um afnám þessara l. Eins og menn vita var tilætlunin með þessum l. upphaflega tvenns konar.
Í fyrsta lagi átti að útvega fremur en áður hafði tekizt tæki sömu tegundar og gerðar, svo sem bifreiðar og varahluti til þeirra, og minnka um leið kostnaðinn og óþægindin við ýmsar og ósamstæðar gerðir. Í öðru lagi átti að afla ríkinu tekna nokkurra með þessu. Reynslan varð sú um raftækin, að stj. felldi niður einkasölu á þeim von bráðar.
Svo margir gallar eru og á bifreiðaeinkasölunni, að hún mun ekki eiga langa lífdaga fyrir höndum. Mér er það ljóst, að þetta frv. mun ekki ganga fram hér á þessu þingi. En það mun þá verða tekið upp síðar, og er ég viss um, að samkomulag mun þá verða um að láta bifreiðaeinkasöluna fara sömu leið og raftækjaeinkasöluna.
Allir vita, að aldrei hafa fleiri tegundir bifreiða verið í landinu en nú.
Bifreiðaeinkasalan virðist því þarflausari sem innflutningur bíla utan hennar vex stöðugt. Þess skal getið, að hún tekur aukagjald af þessum bifreiðum. Ef menn telja rétt að skatta þær, þá væri það eðlilegast með sérstakri skattálaga heimild, en ég tel ekki rétt, að bifreiðaeinkasalan taki fé fyrir það, sem hún kemur ekki nálægt. Á þessu ári hefur einkasalan flutt inn í landið 120 bifreiðar, en 158 hafa verið fluttar inn utan hennar.
Þessir 158 bílar hafa verið taldir notaðir, en notkun þeirra er lítil sem engin. Þetta sýnir nokkuð. Það sýnir dugnað og starfshæfi einstaklinga, sem hafa getað náð inn í landið fleiri bifreiðum en hin opinbera einkasala. Þó er alkunnugt, að umsóknir um bíla til einkasölunnar eru gífurlega margar.
Ég get dæmt af eigin raun um, að þessi mál eru erfið. Bærinn þarf á mörgum bílum að halda til fólks- og vöruflutninga. Ef sótt er um nýjan bíl, er aldrei hægt að fá ákveðin svör, nema að beita sér sem freklegast. Margir hafa fengið bíla, sem þeir fara svo með beint í Bretavinnuna, en Rvíkurbær hefur enga fengið.
Ég get einnig nefnt sem dæmi, að lögreglustjóra hefur tekizt af sjálfsdáðum að útvega bifreið á tveimur mánuðum utan við einkasöluna, en sakamáladómari varð að bíða eftir sinni bifreið frá einkasölunni í 2 ár og hafði þó sízt minni þörf á henni. Samkvæmt fenginni reynslu um starfrækslu bifreiðaeinkasölunnar, þá virðist augljóst mál, að hún sé engum til góðs og því rétt að leggja hann niður. Svo óska ég, að þessu frv. verði vísað til hv. fjhn.