24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í C-deild Alþingistíðinda. (717)
34. mál, lögreglumenn
Flm. (Áki Jakobsson) :
Við flytjum hér saman, ég og hv. 1. landsk, þm., frv., sem er aðallega breyt. á gildandi l., sem samþ. voru í des. 1939. Höfuðbreyt. eru í fyrsta lagi að takmarka mjög verulega vald dómsmrh. í l. um lögreglumenn, bæði að því er snertir tölu lögreglumanna og tæki þeirra. Það hefur mikið verið um það rætt, að fyrrv. dómsmrh. hafi á sínum tíma keypt miklar vopnabirgðir, sem áður voru ekki taldar nauðsynlegar fyrir lögregluna.
Það hefur enginn viljað kannast við það úr ríkisstj. að hafa haft þau vopnakaup með höndum. Það virðist full ástæða til þess nú að taka þetta vald aftur til baka og sjá um, að þessum vopnum verði fargað. Ég tel ekki viðeigandi, að íslenzk lögregla hafi með höndum vélbyssur og eiturgas eins og komið hefur fram, að verið hefur. Ég tel, að allir eigi að sameinast um það, að þessi vopn verði lögð niður. Ég hef hins vegar ekki fengið upplýsingar um það, hvar vopnin eru, hins vegar hefur það upplýstst, að til þessara vonakaupa hefur verið varið 74 þús. kr. úr ríkissj. Hins vegar gat hæstv. dómsmrh. ekki gefið fullkomnar upplýsingar um þetta, er hann var um það spurður í bæjarstj.
Það má ekki koma fyrir í lýðræðisþjóðfélagi, að ráðh. í stj. geti á eigin spýtur skapað sér her og valið í hann menn. Þessi vopn mundu eflaust verða notuð til þess að gera út um íslenzk málefni, en ég get ekki gengið inn á, að tekið sé til slíkra ráða til þess að útkljá íslenzk málefni. Í öðru lagi er í þessu frv. farið fram á, að starfsmenn Skipaútgerðar ríkisins og starfsmenn varðskipanna séu leystir undan þeirri kvöð að vera nokkurs konar lögreglumenn. Þessir menn eru ekki ráðnir til þeirra hluta, og þeir kæra sig ekki um það. Ég veit, að starfsmenn varðskipanna vilja ógjarnan vera kvaddir til lögreglustarfa. Í öðru lagi er lagt til, að ósamræmi það, sem nú er í þessum málum, verði lagfært, sem sagt það, að bæjarsjóðirnir séu látnir borga kostnaðinn við lögregluhaldið, en bæjarstj. fái hins vegar engu um skipan eða starfshætti lögreglunnar að ráða. Ég álít, að það sé ekki hægt að hafa þetta ósamræmi lengur í þessum málum. Mér sem bæjarstjóra hefur reynzt þetta svo, að mjög erfitt sé að fá lögreglustjóra til þess að skipta sér af öðrum málum en þeim, sem beinlínis eru glæpamál. Það getur vel verið, að það sé nauðsynlegt, að lögreglan leggi áherzlu á að upplýsa glæpamál, en ég álít, að reynslan hafi sýnt það, að verkefnin eru ekki fyrst og fremst á því sviði, heldur að halda uppi reglu og líta eftir, að ýmsum ákvæðum sé fylgt, svo sem byggingar samþykkt um, heilbrigðissamþykktum o. s. frv. Ég álít sem sagt nauðsynlegt, að bæjarstj. ráði meira yfir lögregluliðinu en verið hefur. Það er þess vegna nauðsynlegt, að þetta mál verði athugað rækilega. Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en vil leggja til, að málinu verði vísað til n. til nánari athugunar.