18.08.1942
Neðri deild: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (722)

36. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Flm. (Ísleifur Högnason) :

Herra forseti. — Um vinnutíma íslenzkra sjómanna eru togaravökulögin frá 1921. En þá var ákveðið, að vinnutíminn á togurum skyldi vera takmarkaður þannig, að hver háseti skyldi hafa 6 tíma hvíld á sólarhring. Árið 1928 var vinnutíminn svo styttur þannig, að hvíldartíminn varð 8 klst. Samkvæmt 2. gr. þeirra l. eru ákvæði um það, að hverjum háseta sé skylt að vinna 16 klst. á sólarhring. En ég efast um, að í l. nokkurrar annarrar þjóðar séu ákvæði, sem skylda menn til að vinna svo lengi, því að 16 klst. vinnutími er allt of langur vinnutími, og er ekki við unandi fyrir sjómenn að vera skyldaðir til svo langs vinnutíma, nema brýn nauðsyn krefji. Nú er upplýst, að á togurum frá Norður-Ameríku og víðar er vinnutíminn styttur í 12 klst. Þeir skoða það ekki þar svo, að það skaði útgerðina, þó að vinnutíminn hafi þar verið styttur í þetta, og það skaðar ekkert aflabrögðin, þau eru eins mikil og áður. Þessi stytting vinnutímans, sem þar hefur átt sér stað, er óneitanlega mikil kjarabót fyrir sjómenn. Ég skal ekki að órannsökuðu máli slá því föstu, að það mundi ekki einhver áhrif hafa á afla flotans, ef hvíldartíminn væri lengdur í 12 klst. á sólarhring. En ég ætlast til þess, að málið gangi til n., og að sú n., sem um málið fjallar, rannsaki gaumgæfilega, hvort þessi 16 klst. vinnutími sé ekki óþarflega langur. Ég hef talað við nokkra sjómenn og skipstjóra, og þeim kemur saman um, að 16 klst. vinnutími á togurum sé ekki annað en úrelt form, a. m. k. er á ísfiskveiðum engin þörf á að hafa svo langan vinnutíma.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta. En ég vonast til þess, að hv. þm. samþykki að vísa þessu máli til 2. umr. og n. sú, sem fjallar um málið, ransaki það gaumgæfilega, því að það er svo mikils virði að fá þetta lagfært fljótt. Álít ég, að menn ættu ekki að spara sér ómak til þess að komast fyrir um það, hvort það, sem í frv. er farið fram á, sé ekki framkvæmanlegt.