19.08.1942
Neðri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (732)

58. mál, skipaafgreiðsla Eimskipafélags Íslands h/f

Finnur Jónsson:

Það er skaði, að hv. 5. landsk. þm. (IngJ) skuli ekki hafa verið hér á Alþ. í vetur, þegar verið var að afgreiða gerðardómsl. Hefði hann þá getað lagt sitt lóð á vogarskálina og komið í veg fyrir, að þau yrðu samþ. Því að ástandið, sem skapazt hefur hér við Rvíkurhöfn og annars staðar í vinnumálum, sem er mjög alvarlegt, er ein af afleiðingum gerðardómsl. og hefði aldrei komið til, ef þau l. hefðu ekki verið afgreidd hér á hæstv. Alþ. Þess mega þeir flokkar minnast, sem stóðu að því þá að setja þessi l. Nú er vitanlegt, að það ástand, sem hefur skapazt vegna gerðardómsins, það væntanlega lagast nú aftur, þegar gerðardómurinn er afnuminn og verkalýðsfélögin fá aftur til umráða mál sín og verða frjáls að því að semja við atvinnurekendur, svo að í staðinn fyrir þann smáskæruhernað, sem verkamenn hafa ekki óskað eftir að taka upp, geti komið reglulegir kjarasamningar, sem þá gildi um ákveðinn tíma.

Nú er það svo um það mál, sem hér liggur fyrir, að það má vel vera, að það þurfi mjög bráðrar úrlausnar. Hv. 5. landsk. sagði, að það væri ekki hægt að afgreiða þetta í frumvarpsformi, af því að það tæki svo langan tíma. Nú er þetta ekki rétt, því að ef samkomulag er um að afgreiða eitt mál, er hægt að láta það ganga í gegnum sex umr. á stuttum tíma. Sé það rétt, sem fullyrt er í blöðum hér í bænum, að hin erlenda setuliðsstjórn sé búin að tilkynna sáttasemjara, að hún ætli að taka að sér skipaafgreiðsluna, sem þarf að vinna hér við höfnina, ef ekki verður hafizt þegar handa um áframhald verksins af íslenzkum mönnum, þá skilst mér, að það ætti ekki að vera neinn ágreiningur um það milli flokkanna í þinginu, að þessu máli þurfi mjög að hraða. Ég hefði viljað spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ríkisstjórn, ef nokkur ráðh. skyldi vera nærstaddur, hvað væri í hennar vitneskju í þessu máli og hvað hún hygðist að gera í þessu máli til þess að koma í veg fyrir, að erlent hervald grípi inn í vinnumál okkar hér í landinu. Því að ég geri ráð fyrir, að þingflokkarnir, þó að þá greini á um margt, séu sammála um það, að slíkt sé hvorki æskilegt né þolandi, heldur verðum við að sýna það, að við getum ráðið okkar innanlandsmálum án erlendrar íhlutunar.

Ég beini þessum fyrirspurnum til hæstv. ríkisstjórnar. Og ef hún hefur ekki aðrar till. í þessu mál heldur en þær, að þetta frv. verði samþ., sem hér liggur fyrir, þá vil ég fá það afgreitt sem allra fyrst.