18.08.1942
Efri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (778)
49. mál, bændaskóli Suðurlands
Flm. (Eiríkur Einarsson) :
Ég hélt satt að segja ekki, að hv. þm. Str. mundi rísa hér upp úr sæti sínu með heilagri vandlætingu út af þessari till. Hann tók mig á orðinu, þegar ég sagði, að till. væri meinlaus. Ég gerði það með ráðnum hug að segja, að hún væri meinlaus, en ekki gagnslaus. En það var þessi sami hv. þm., sem eyddi málinu, þegar ég bar fyrst fram till. um bændaskóla Suðurlands, dró það undir kjólfald flokks síns með því að segja, að það væri mþn., sem ætti að athuga skólamálin í heild, en ég hef heyrt, að þessi n. væri ekki skipuð enn. Ég hélt að búmannshugur hans og velvilji til bænda væri svo mikill, að hann væri ekki á móti, að hafinn væri nauðsynlegur og eðlilegur undirbúningur undir þetta mál. Ég held, að það sé eitthvert flokksfylgi, sem veldur þessari afstöðu hans nú, alveg eins og þegar hann upphaflega eyddi málinu. Þegar málið var svo borið fram og samþykkt á síðasta þingi með fylgi allra flokka, þá heyrðist ekki meira nefnd þessi heildarskipulagning skólamálanna. En þó að hv. þm. Str. sé fylgjandi þeirri stefnu, þá hélt ég, að hann gæti látið óáreitta þessa meinlausu till. mína um að skora á ríkisstjórnina, að ljúka undirbúningi þessa máls á þessu sumri, því að þótt það sé svo í augnablikinu, að í ríkisstj. séu menn af sama flokki og ég, þá er það vitað, að fleiri mundu koma til að fjalla um þetta mál en ráðuneytið. Og hvað er á móti því að samþykkja þessa till.? Ekkert nema sjónarmið þeirra manna, sem vilja draga allt á langinn.