18.08.1942
Efri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (780)

49. mál, bændaskóli Suðurlands

Hermann Jónasson:

Ég ætla ekki að eyða orðum við hv. þm. Barð., sem er nýkominn til þings og þá jafnframt — nei, það er bezt að tala ekki um það.

Flm. till. er einn af stuðningsmönnum ríkisstj., og hefði hann getað gengið upp í stjórnarráð til þess að ræða um málið við stj. sína. Í sumum þingum er það venja, að slíkar till. um framkvæmd mála eru ekki fluttar af öðrum en stjórnarandstæðingum. Sú vinnuaðferð, sem ég minntist á, er vissulega líklegri til árangurs en að flytja hér slíka till. um áskorun til ríkisstj.

Af því, sem hv. þm. Barð. sagði hér, var auðheyrt, að hann hafði reiðzt heldur en ekki. En þessi hv. þm. er þekktur að því að kunna illa að stilla skap sitt, enda varð hann sér til minnkunar af þeim ástæðum á þingmálafundum í Barðastrandarsýslu og mun yfirleitt verða það, hvenær sem hann kemur fram á fundum. Virðist hann nú ætla að fara að haga sér á sama hátt hér í hv. d. Hv. þm. talar um, að framsóknarmenn tefji þingið, en hægt er að benda á það og sanna, að sjálfstæðismenn hafa flutt fleiri og lengri ræður hér á þinginu en framsóknarmenn, og má minna á það til dæmis, að stjórnarsinnar héldu hér 11 ræður við 1. umr. dómnefndarinnar á móti einni stuttri ræðu framsóknarmanns. Svo kemur þessi hv. þm. hér fram og staðhæfir, að framsóknarmenn tefji þingstörfin, og viðhefur svipað orðbragð og á framboðsfundum í kjördæminu, þar sem hann slysaðist inn í fyrsta sinn. En það mun brátt koma í ljós, hversu langt þing núv. ríkisstj. vill hafa, og mun þá verða auðvelt að dæma um það, hvorir tefja störf þingsins. En ég vil endurtaka þau orð mín, að ég tel það ósæmileg vinnubrögð, er flokksmaður ríkisstj., sem býr í næsta húsi við stjórnarráðið svo að segja, er að flytja hér slíka till. sem þessa í stað þess að fara upp í stjórnarráð og biðja ráðh. að skrifa tilmæli hans í minnisbók sína. Slíkar till. geta stjórnarandstæðingar borið fram, en ekki stjórnarsinnar.