02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Sigurður Kristjánsson:

Úr því að farið er að láta í ljós óskir sínar um einstök mál, er þm. bera fyrir brjósti, þá er þetta í þriðja sinn, sem ég vek máls á því við hæstv. forseta að taka fyrir mál, sem ég stend að og í þetta skipti hefur verið dæmt til að vera nr. 13 á dagskránni í dag.

Mál þetta dagaði uppi á síðasta þingi, og hafði ég því góða von um, að það mundi ná fram að ganga á þessi þingi, þó að stutt eigi að verða, því að það mál er mjög aðkallandi fyrir þann atvinnuveginn, sem einna nauðsynlegastur er fyrir landsmenn í heild, og því fremur bjóst ég við, að þetta mál yrði tekið fyrir til afgreiðslu, þar sem þetta þing hefur ekkert gert fyrir sjávarútveginn að þessu sinni enn sem komið er.

Þó að ég vilji á engan hátt fara í meting um mál né átelja hæstv. forseta fyrir, að þetta mál skuli ekki hafa komið til fyrri umr. enn, þá vil ég vænta þess, að málið verði tekið fyrir nú.