02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (791)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (GSv) :

Það er nú nokkurn veginn ljóst orðið, að sá stutti tími, sem ætlaður var þessum fundi, ætlar að líða, án þess að hægt verði að ganga til dagskrár. Vil ég því mjög eindregið mælast til þess, að ræðumenn verði ekki langorðir.