02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (794)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Sigurður Kristjánsson:
Út af grg. hæstv. forseta viðkomandi 13. máli á dagskránni — þessu dæmda máli, að mér skilst á dagskránni, — vil ég taka það fram, að hann sagði, að málin hefðu haldið sinni röð. En þetta er ekki rétt. Það var held ég á næstsíðasta fundi, að þá voru þrjú mál afgr. hér, sem voru neðar á dagskránni en þetta mál þá var. Það stóð þannig á um þau, að þau þurftu að koma tvisvar á dagskrá, í fyrra skiptið til þess að ákveða, hvernig ræða skyldi, og svo í síðara skiptið til einnar umr., sem hæstv. forseti ákvað þá. Þetta mál, sem hér er á dagskrá og ég hef verið að bera fyrir brjósti, þarf líka sennilega að vera hér tvisvar til umr. En það hefur ekkert verið gert til þess að flýta fyrir því, heldur hafa önnur mál verið tekin fram yfir. Og það hafa verið tekin fyrir hér mál, sem miklu seinna hafa fram komið og eru miklu meiri fjárhagsmál og þurfa að ganga gegnum 2 umr. Af þessu er augljóst, að þessu máli mínu hefur verið misboðið til gagns öðrum málum. Og ég vil spyrja hæstv. forseta um það, hvaða forréttindi honum sýnist 5. mál á dagskránni hafa fram yfir þetta mál. Það er síðar fram komið og einstaks manns mál. Og það er bersýnilegt, að mér virðist, að flm. þess hefði getað fengið það afgr. utan þings bara við ríkisstj. Þessu máli mínu hefur þess vegna verið misboðið, þó að ég álíti ekki, að það hafi verið af óvild til málsins. En þetta hefur nú atvikazt þannig, og vil ég því fá það leiðrétt.