02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (798)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
forseti (GSv) :
Ég hef ekki séð mér fært að mæla á móti því, að menn fengju að gera aths. út af þeim mörgu málum, sem hér eru á dagskrá. En það er víst, að mál eru sett á dagskrá eftir aldri þeirra, aðeins reynt að færa saman skyld mál. Allar ákúrur í því efni eru því ófyrirsynju fram bornar. Það hefur verið reynt að halda fundi og gera samþykktir eftir því, sem tími hefur leyft, en þegar tilkynningar koma skrifl. frá Ed. um, að hún geti ekki lengur beðið, verð ég að hætta þessum fundi, en vil gera tilraun síðar í dag að koma áfram þeim málum, sem hér eru á dagskrá. Verður þessum fundi því frestað þar til kl. 8½ í kvöld, ef takast mætti þá að koma áleiðis einhverju af þeim málum, sem hér eru nú á dagskrá.