20.08.1942
Efri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (807)

54. mál, vegagerð

Flm. (Jónas Jónsson) :

Hv. 9. landsk. hefur stutt mál mitt í ræðu sinni, en um hv. þm. Barð. er það að segja, að hann virðist ekki vera alveg með á nótunum, að því er snertir fyrirkomulag þessara mála, enda er hann nýkominn á þing. Honum er ekki ljóst, að það eru tvenns konar fjárveitingar, sem hér koma til greina, annars vegar til nýlagningar vega og hins vegar til viðhalds vega. Framlög til nýrra vega eru ákveðin a fjárl., og mun kjördæmi hans fá að njóta þeirra framlaga sem önnur. En svo er mikil upphæð, sem fer til þess að viðhalda vegum og ríkisstj. ræður yfir en ekki Alþ. Og þetta rekst engan veginn hvað á annað. Hvað er viðhald vega? Það er að gera þá færa. En það er nú svo, að margir vegir hér á landi geta naumast talizt færir. Vegur getur ekki talizt fær, ef hann er svo slæmur, að hann stórskemmir farartækið, eins og oft vill verða og hv. 9. landsk. tilfærði dæmi um. Þetta viðhald vega kostar að vísu mikið fé, en viðgerð farartækja kostar líka fé, sérstaklega á þessum tímum, þegar bifreiðar verða stundum að bíða hálfan eða heilan mánuð eftir viðgerð. Hv. þm. Barð. er vanari að vera á sjó en landi, og honum er því ekki eins ljóst og hv. 9. landsk., að þessir vegir eru frá upphafi vansmíð vegamálastjóra og bera vitni um lítið verksvit. Það er eins og þegar keypt er gallað skip og settar í það vélar, sem ekki duga, af því að þeir, sem stóðu fyrir skipskaupunum, höfðu ekkert vit á málunum. Þetta ætti háttvirtur þingmaður að skilja.

Ég skal svo hugga hv. þm. með því, að verði ég á þingi, þá skal ég styðja það, að lagður sé svo ríflegur skattur á stríðsgróðamenn og spekúlanta, að nóg fé verði til að leggja í vegi þá, sem hann ber fyrir brjósti.