27.08.1942
Efri deild: 16. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
Þingfylgi ríkisstjórnarinnar
Forsrh. (Ólafur Thors):
Mér þykir viðeigandi, að nokkur orð komi frá ríkisstj. út af þeim yfirlýsingum, sem hér hafa komið fram, þó að mér þyki ekki sérstök ástæða til þess, því að ég lít ekki á þetta sem nýja afstöðu einstakra flokka á Alþ. til ríkisstj. Þegar Sjálfstfl. tók við völdum 16. maí í vor, lýsti ég yfir því, að Sjálfstfl. hefði tekið forustuna og færi einn með stjórnarstörfin, án þess að hann hefði gert samning við aðra flokka. En Sjálfstfl. treysti því, að sú stj., sem tók við völdum til að stýra kjördæmamálinu heilu í höfn, mætti reiða sig á, að þeir flokkar, sem fylgdu henni í því máli, mundu varna vantrausti, meðan stæði á að ljúka málinu á þinglegan hátt.
Varðandi síðari lið í yfirlýsingu hv. þm. Seyðf. f. h. Alþfl., þá er heldur ekkert nýtt í því. Það er í samræmi við vilja núv. stj., að vandamálin séu rædd milli flokkanna, og hún skýrði frá því, rétt eftir að hún tók við völdum, við umr. um vantraustið, að hún áliti, að þjóðstjórn væri heppilegri en flokksstjórn. Ef flokksstjórn færi með völd, þá taldi hún bezt fara á því, að það væri stj. Sjálfstfl. Ég sé ekki, að nokkuð nýtt hafi komið fram við þessa yfirlýsingu Alþfl., og hún kom stj. ekkert á óvart. Sama er að segja um yfirlýsingu Sósfl. Stjórninni hefur engum stuðningi heitið verið nema stuðningi Sjálfstfl., enda ekki beðið um hann.
Hv. þm. S.-Þ. vil ég segja það, sem hann veit, að milli flokkanna hefur aðeins verið samstarf um eitt mál, kjördæmamálið. En það væri að æra óstöðugan, ef allir flokkar ættu að fara að elta ólar við ræðu hans, eins og hún gaf tilefni til. Ég læt hana því liggja milli hluta. Ég endurtek, að flokkarnir hafa haft þetta eina mál sameiginlegt, og stj. telur því hér engin ný viðhorf. hafa komið fram við þessar yfirlýsingar. Hún mun nú bíða þess, hvort Alþ. samþykkir stjórnarskipti eða ekki. Ef stj. fer áfram með völd, þá telur hún það fyrstu skyldu sína að efna til kosninga í landinu í samræmi við hina nýju kjördæmaskipan svo fljótt sem auðið er.
Fleira tel ég ekki ástæðu til að taka fram f. h. stjórnarinnar.