27.08.1942
Efri deild: 16. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (811)

Þingfylgi ríkisstjórnarinnar

Brynjólfur Bjarnason:

Það er rangt hjá hv. þm. S.-Þ., að við sósíalistar höfum nú verið að yfirgefa stj. Þetta er hægt að sanna á þann einfalda hátt, að ekki er hægt að yfirgefa þann stað, sem maður hefur aldrei verið á. Eina breytingin, sem orðin er hér á, eru hin nýju l., sem nú hafa verið samþ.

Annars er harla einkennilegt að heyra þennan hv. þm. tala um upplausn og ábyrgðarleysi, og kemur það úr hörðustu átt. Allir flokkar nema Framsfl. hafa viljað ræða um lausn vandamálanna án allra skilmála. Framsfl. einn setti skilyrði fyrir því, að hann vildi taka þátt í að leysa vandamálin. Skilyrðið var, að hann fengi að halda áfram öllum sínum sérréttindum. Og svo dirfist þessi flokkur að bregða öðrum um ábyrgðarleysi.