27.08.1942
Efri deild: 16. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (812)

Þingfylgi ríkisstjórnarinnar

Jónas Jónsson:

Ég ætla að minna hv. síðasta ræðumann á það, að einn af flokksmönnum hans, Kristinn E. Andrésson, var með mér á 11 framboðsfundum í vor, og virtist öllum ljóst, að ekki væri hægt að hugsa sér innilegri fjölskyldu en frambjóðendur Sósfl., Alþfl. og Sjálfstfl. undir forustu sýslumannsins, sem alltaf mætti í „uniformi“, eins og vera bar. Hann tók svo að sér þessa tvo unglinga, eins og hinn góði hirðir, og gaf þeim fyrirskipanir, eftir því sem sagt var, um, hvernig þeir ættu að haga árásum sínum á Framsfl., er nú átti að setja ofan.

Fulltrúi Alþfl., en hann var í öllu fremri fulltrúa kommúnista, lýsti svo yfir því að lokum, að það væri í rauninni sama, hver hinna þriggja flokka væri kosinn, þar eð þeir stefndu allir að sama marki. Því get ég nú ekki skilið þetta. Það er einna líkast því, er slitnar upp úr trúlofun, og eins og títt er þá, vill Alþfl. nú ekki kannast við það ástand, sem hann hefur verið í með Sjálfstfl. Og þegar hann segist ekki hafa stutt stj., þá er sannleikurinn sá, að hann hefur stutt hana um allt hér á Alþ. og vildi ekki fella hana. Hitt er svo vafamál, hvort stj., sem vill vinna gagn, getur nokkuð notazt við kommúnista.

Þessar yfirlýsingar, sem hér hafa verið fram bornar, minna einna helzt á yfirlýsingar Hitlers og Stalíns, er þeir yfirlýstu Finna og Tékka árásarmennina. Allar þessar yfirlýsingar eru álíka sannfærandi.

Um það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði um ábyrgðarleysi Framsfl., vil ég segja, að það er til einskis fyrir fólk úr þeim herbúðum að koma hér fram, berja sér á brjóst og þykjast fullir ábyrgðar.

Í stuttu máli sagt: Ég hafði það fyrir augum mér fyrir síðustu kosningar, að þessir 3 umræddu flokkar stóðu saman sem einn. Ég vitna því um það, að þetta eru trúlofunarrof hér í dag.