28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (818)
Þingfylgi ríkisstjórnarinnar
Forsrh. (Ólafur Thors) :
Ef hún hefur ekki verið þingræðisstj., þá hefur hún ekki farið leynt með það. Annars eru í þingræðislöndum dæmi þess, að stj. hafi setið að völdum, án þess að hún hafi fengið yfirlýsingu um fylgi meiri hl. þings, allt þangað til meir í hl. hefur tjáð sig vera á móti stj. Ég vil minna þennan mjög minnuga mann á, að þegar þessi stj. tók við völdum, lýsti hún yfir, að hún hefði ekki stuðning eða hefði beðið um stuðning þeirra, heldur nyti stuðnings Sjálfstfl. eins. Það er því opið á þingræðislegan hátt að mynda aðra stj., og ég bíð rólegur eftir því, að það verði gert. Sjálfstfl. hefur frá öndverðu haft þessa aðstöðu, að taka á sig einan ábyrgð af stjórnarstörfunum, vitandi það, að hann hefur verið umkringdur af andstöðu, sem hefur verið í meiri hl. Í þessu hefur ekkert breytzt, og svo sýna menn bara, hvaða stj. þeir vilja hafa í landinu.