20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (859)

2. mál, söluverð á síldarmjöli til fóðurbætis

Finnur Jónsson:

Ég held, að það væri hreinlegra að samþykkja brtt. mína, til þess að hæstv. stj. hafi eitthvað að halda sér við í þessu efni. Sé svo, að ekki sé hægt að selja meira magn af mjöli fyrir það verð, sem búið er að ákveða, heldur en það, sem samningar hljóða upp á, þá er það vitanlega ekki markaðsverð fyrir annað en það, sem selst með því verði. Afganginn yrði þá að selja á annan stað einhverju öðru verði, og réttlátt er þá, að það verð gildi, sem hægt er að fá fyrir mjölið annars staðar á hverjum tíma. Það er ákaflega fjarri því, að ég sé með þessari till. að reyna að snuða ríkisstj. Ég tel hins vegar, að um þetta séu ekki nógu skýr ákvæði í þáltill. Út af því, sem hv. frsm. n. sagði, skal ég geta þess, að ég veit satt að segja ekki betur en ég hafi áskilið mér rétt til þess að bera fram brtt. Það er ekki alveg rétt með farið hjá hv. frsm., að n. hafi tekið afstöðu til þessarar brtt. Hún gerði það a. m. k. ekki á þeim fundum, sem ég sat. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meira um. þetta. Ég mun fylgja þessari till. og treysti því, að hún nái samþykki.