24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (880)
55. mál, lendingarbætur við Dyhóley
Flm. (Gísli Sveinsson) :
Herra forseti. — Þessi till. er flutt af líkum forsendum og aðrar till. í þessari hv. d. um svipað efni. Ég tel, að grg., sem ég læt fylgja till., sýni vel, hvert hún stefnir, og skýri tilgang hennar. Staðurinn, sem um er að ræða, hefur mikið til síns máls í þessu tilliti, og má segja, að ekki getur stafað neinn sérstakur kostnaðarauki af rannsókn þar, þar sem rannsóknir fara nú fram meðfram allri strandlengjunni.