10.08.1942
Efri deild: 3. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Atvmrh. (Magnús Jónsson) :

Eins og hv. þm. er kunnugt, var þetta þing raunverulega kallað saman út af einu máli aðeins, nefnilega stjórnarskrármálinu. Á síðasta þingi var samþ. breyt. á stjskr., og var þá þing rofið, og kosningar fóru fram. Eftir þær kosningar var þetta þing kallað saman til þess að samþ. eða hafna frv. því um breyt. á stjskr., sem lagt hefur verið fram. En síðasta þing stofnaði þó til þess með tvennum hætti, að kosningar yrðu að fara fram aftur fljótlega, fyrst og fremst með því að setja í stjskrfrv. það bráðabirgðaákvæði, að kosningar til Alþ. skyldu fara fram, þegar stjórnskipunarl. þessi öðluðust gildi, og í annan stað með því að skipa mþn. til þess að undirbúa aðrar breyt. á stjskr. og nota kosningarnar til þess að fullnægja ákvæðunum um, að þing skyldi rofið.

Ríkisstj. taldi því ekki rétt að bera fram mikinn fjölda frv., svo að hægt yrði að ljúka störfum þingsins sem fyrst, því að augljóst er, að þing verður að vera stutt, ef kosningar eiga að geta orðið í haust. Hins vegar ber þess að gæta, að mál eins og þetta hlýtur að taka nokkurn tíma, og er því ekki nema eðlilegt, að sá tími sé fylltur upp af ýmsum öðrum störfum, þar sem hægt er að gera það án þess að lengja setu þessa þings. Stj. ákvað þess vegna að leggja fyrir þingið fáein mál, er tekin yrðu til meðferðar jafnframt stjskrfrv. Eitt þeirra er þetta frv. um dómnefnd í verðlagsmálum.

Aðalatriði frv. felst í 15. gr., þar sem ákveðið er, að numin skuli úr gildi l. nr. 28, 29. maí 1942 og l. nr. 118, 2. júlí 1940.

Það fór að verða mörgum áhyggjuefni fyrir nokkru, hve dýr tíð færðist í vöxt. Það mátti að vísu vera öllum ljóst, er ófriðurinn hófst, að dýrtíð mundi aukast, og enn þá augljósara varð þetta, þegar hingað kom erlendur her, og síðar, er samið var um hervernd landsins ásamt stórkostlegum framkvæmdum í því sambandi, því að slíkt hlaut að raska mjög öllu atvinnulífi landsmanna og hafa hin mestu áhrif á allt verðlag. Tók þá brátt að skerast í odda um það, hvernig mæta skyldi hinni auknu dýrtíð. Framsfl. vildi mæta henni með löggjöf, þar sem verði á vörum og kaupgjaldi yrði slegið föstu, en hinir flokkarnir, sem stóðu að ríkisstj., voru ekki við því búnir að fara þessa leið, og komu þeir sér saman um að leysa dýrtíðarmálin eftir hinni frjálsu leið, sem svo var kölluð. Þarf engan að undra, þótt Sjálfstfl. veldi þá leiðina, því að það er í samræmi við stefnu hans. Hins vegar lýsti formaður flokksins þá þegar yfir því, að fara yrði aðrar leiðir, ef þessi leið reyndist ekki fær. Eins og mönnum er kunnugt, fékkst því ekki framgengt, að þessi leið yrði farin. Ákveðnir hópar manna tóku að gera kröfur um hækkað kaup, og þótt hér væri ekki um fjölmenna hópa að ræða, var þó viðbúið, að miklir erfiðleikar mundu skapast, ef þeir létu vinnu sína niður falla, en hins vegar var ljóst, að aðrir mundu á eftir koma, ef þessir fengju sínu framgengt, og mundu þá fara svo, að erfitt yrði að stöðva skriðuna. En óhjákvæmilegt var, að framkvæmd þessara krafna mundi leiða af sér hækkað vöruverð, það aftur hækkað kaupgjald og svo koll af kolli. Án þess að ég vilji skella sök á hendur nokkrum sérstökum mönnum eða flokkum, vil ég aðeins bendá á það, að upptök þessarar þróunar eru hjá þeim mönnum, sem fyrstir komu skriðunni af stað með kröfum um hækkað kaupgjald.

Þegar svona var komið, hóf Sjálfstfl. samvinnu við Framsfl. um að reyna að stöðva þessa þróun, ekki með fastri löggjöf, er byndi allt kaupgjald og verðlag, heldur með skipun gerðardóms í kaupgjalds- og verðlagsmálum, er stuðla skyldi að því, að ekki færi fram frekari hækkun á grunnkaupi. Er augljós munur á þessu tvennu, því að hér var ekki hin dauða og kalda hönd lagabókstafsins látin skera úr um málin, heldur reynt að hliðra til eftir föngum með skipun dómnefndar. Það var raunar ljóst, að á framkvæmd þessara l. mundu verða allmiklir örðugleikar, og sjálf löggjöfin ber það reyndar með sér, því að í henni voru ákvæði um það, að löggjöfin skyldi falla niður af sjálfri sér um næstu áramót og l. nr. 118 2. júlí 1940, um verðlag, ganga í gildi í stað hennar, án þess að Alþ. þyrfti að skipta sér af. Það er auðséð á þessu, að menn bjuggust við miklum örðugleikum á framkvæmd 1., og mátti þá ljóst vera, að höfuðörðugleikarnir mundu skapast af því, ef barizt yrði beinlínis að yfirlögðu ráði gegn þeim og aukið með því á önnur vandkvæði. Þarf ekki annað en benda á hina miklu vinnueftirspurn setuliðsins til þess að sjá, hverjir erfiðleikar hlutu að vera á því að halda kaupinu óbreyttu. Við höfum ekki á að skipa þeim þegnskap, er einkennir stríðsþjóðirnar, sem berjast fyrir lífi sínu. Það ber lítt á því hér á landi, að menn geri þá hluti af þegnskap einum, sem þeir hefðu annars látið ógerða. Menn meta yfirleitt allt eða flest til peninga. Ég er ekki að segja, að þetta sé óeðlilegt, en af þessum ástæðum var ekki hægt að treysta á neitt annað en kalda og rólega íhugun, — að menn gerðu sér ljóst, að heppilegast mundi að láta sér nægja það, að löggjöfin hafði ákveðið að bæta upp dýrtíðina að fullu, — að menn létu sér skiljast, að öllum mundi vera fyrir beztu, að haldið væri í horfinu eins og var. En þessu var ekki til að dreifa. Tækifærin voru nóg, því að hvarvetna tók að bera á skorti vinnuafls. Og þegar vinna fór að hefjast við húsagerð hér í bæ og smíði sumarbústaða, vegagerð og margt fleira, varð eftirspurn vinnu svo mikil, að sýnt var, að ekki mundi reynast tiltækilegt að framkvæma l. Þetta varð til þess að grafa undan raunverulegu gildi ákvæðanna, því að áður en varði, hafði fjöldi manns fengið grunnkaup sitt hækkað, og var þannig kominn út fyrir vébönd laganna. Og þegar fram á vorið dregur, kemur það í ljós, að flokkar manna, sem vinna hjá hinu opinbera eða fyrirtækjum, sem l. gátu einna bezt náð til, eru komnir í verri aðstöðu en ýmsir aðrir, að því er kaupgjald snertir, og þeir segjast fara úr vinnunni, ef þeir fái ekki hækkað grunnkaup. Hér skapast það einkennilega ástand, að menn rísa upp án verkfalls, krefjast launahækkunar og segja: „Við vinnum hér ekki lengur, nema okkur sé greitt betra kaup.“ Þegar svo var komið, var óhugsandi annað en vinna stöðvaðist við ýmis þau fyrirtæki, sem engan veginn máttu stöðvast, nema gengið væri að þessum kröfum. Það var t. d. ljóst, að ef afgreiðsla skipa stöðvaðist, þá mundu Ameríkumenn segja, að þeir gætu ekki sent hingað skip sín með vörur til landsins, þeir gætu ekki beint hingað dýrmætustu flutningatækjum sínum, ef þeim yrði ekki tryggð afgreiðsla. Dómnefnd treysti sér ekki til að kveða upp úrskurð í þessum málum, og öngþveitið jókst því meir sem lengra leið. Það var augljóst, að l. gátu ekki staðizt lengur í þessu formi. Þau voru orðin að hneisu fyrir þjóðfélagið, þar eð þess var enginn kostur að framfylgja þeim.

Ég býst við þeirri gagnrýni frá andstæðingum stj., að hana hafi vantað framtakssemi, og ætla ég að bíða eftir þeirri gagnrýni, áður en ég svara henni. En ég vil taka það fram, að slík gagnrýni er tilgangslaus, nema bent sé á það um leið, hvernig hægt hefði verið að framkvæma l., eins og komið var.

Ég ætla svo ekki að færa frekari rök fyrir þeirri ákvörðun stj. að leggja til, að þessi ákvæði verði numin úr gildi. En það, að ekki var horfið að því að sníða þetta frv. eftir l. frá 1940 um verðlag, stafar af þeirri einföldu ástæðu. að verðlagsákvæðin frá 1942 voru sett síðar og eftir nánari athugun og eru því að mörgu leyti einfaldari og auðveldari í framkvæmd en hin.

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um frv. þetta, og þar sem þetta er orðið svo rætt mál í sambandi við lög þau um dómnefnd í kaupgjalds- og verðlagsmálum, sem með þessu frv., ef það nær fram að ganga, verða úr gildi numin, þá legg ég til, að frv. verði vísað til allshn. og 2. umr.