27.08.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (905)
66. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Gísli Jónsson:
Ég skal vera fáorður. En í tilefni af brtt. á þskj. 123 vil ég aðeins taka það fram, að ég teldi rétt, að það kæmi nánar fram 1 brtt., við hvað er átt með orðinu „sjálfseignarstofnanir“. Ég álít það ekki nægilega skýrt fram tekið í till. Mundi ekki hv. flm. brtt. geta fallizt á það, að aftan við orðið „sjálfseignarstofnanir“ bætist: sem hafa styrk frá Alþ.? — Því að mér skilst, að hér muni ekki vera átt við aðrar sjálfseignarstofnanir heldur en einkaskóla, og þeir hafa flestir verið styrktir af Alþ.