27.08.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (907)

66. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Flm. (Sigurður Kristjánsson) :

Hv. þm. V.- Húnv. (SkG) hefur beint tveimur fyrirspurnum til flm. þáltill. Í fyrsta lagi, hvort við flm. höfum fengið nokkrar skýrslur frá ríkisstj. um launaupphæðir embættismanna og starfsmanna ríkisins, og í öðru lagi, hvað flm. ætlist fyrir um greiðslu þeirrar sérstöku uppbótar, sem ber að greiða eftir l. um launauppbót til þeirra starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana, sem hafa börn á framfæri sínu.

Fyrri spurningunni get ég svarað þannig, að fjhn. beggja d. skrifuðu ríkisstj. og óskuðu ýmissa upplýsinga, fyrst og fremst um upphæðir launagreiðslna ríkissjóðs og ríkisstofnana, og í öðru lagi óskuðu þær eftir sundurliðun á launagreiðslunum, og loks, ef unnt væri, að fá skýrslu um breyt., sem hefðu orðið á launakjörum þessa fólks. Þessar n. fengu síðan þær upplýsingar, sem hægt var að láta í té á svo skömmum tíma, að þær væru komnar til fjhn. til þess að hafa þeirra not við afgr. þessa máls. Og launaupphæðin, sem ríkissjóður borgar alls, er um 4 millj. kr. á ári. Sú upphæð er sundurliðuð eftir starfsgreinum, en ekki þannig, að hægt sé að sjá laun hvers einstaks manns. Svo hefur n. einnig fengið skýrslu um laun hjá ríkisstofnunum, sem eru um 2850000 kr., og að lokum mjög lauslega áætluð laun, sem greidd eru bæði sem skrifstofufé og laun til ýmissa n, og til hreppstjóra, ljósmæðra og ýmislegt fleira, sem er fast að 650 þús. kr. Allt er þetta samtals 7500000 kr. N. fengu einnig lista, þar sem hægt var að afla sér upplýsinga um laun ýmissa stétta, svo sem kennara, presta og prófasta, en tæmandi voru þær skýrslur ekki. En um viðbætur við laun, sem orðið hafa á 2–3 síðustu árum, gátum við ekki fengið skýrslur nema með því að bíða eftir þeim lengri tíma en nm. sáu sér fært. En flm. þáltill. hafa reynt að sigla fram hjá skerjum á þann hátt, sem segir í brtt. á þskj. 137. En í rauninni álitum við, að þetta gæti ekki misskilizt í þáltill. sjálfri. Við fengum einnig skýrslur um breyt. á launum, sem mér skilst aðallega vera gerðar til þess að leiðrétta misritun. En við hefðum fengið meiri skýrslur, ef tími hefði verið til þess að bíða eftir þeim.

En um þá sérstöku uppbót til starfsmanna ríkisins, sem hafa börn á framfæri, get ég svarað, þó að ég hafi ekki umboð til þess frá n. Ég þarf ekki umboð til þess að svara því. Það er einfalt mál. Þessi uppbót er ákveðin með l. Við flm. ætlumst ekkert fyrir um það mál. Það er ekki mál, sem heyrir undir okkur. Við höfum ekkert um það að segja og getum þar engu til leiðar komið. Og þar af leiðandi höfum við ekkert fjallað um það mál.