27.08.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (913)

66. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Það var vandalítið að skilja fyrirspurn mína. Ég bað ekki um neinn nafnalista. Af svörum n. er ljóst, að starfsmannaskrá er ekki til, en þó að liggi fyrir skýrslur frá ýmsum stofnunum um, hvað þær greiði í laun í heild, eru það litlar upplýsingar. Ég hef farið fram á að vita, hvað lægi fyrir, og hef átalið, að mér virtist ekki nógu fullnægjandi upplýsingar fyrir hendi. Með því, sem fyrir liggur, tel ég mig ekki geta greitt atkv. um till.