11.08.1942
Efri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Gísli Jónsson:
Herra forseti! Í frv. því til laga, er hér liggur fyrir, kveður svo á í 1. gr., „að skipa skuli í nefndina 5 menn og 3 til vara“.
Í 4. gr. stendur enn fremur, að nefndin sé ekki ályktunarfær, nema allir nefndarmenn séu mættir. Hér er ekki nægilega skýrt ákveðið, hvort n. telst ályktunarfær, ef allir aðalmenn mæta, eða hvort einnig er nauðsynlegt, að varamenn komi til, svo að nefndin sé ályktunarfær samkv. ákvæðum l. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning um þetta atriði, teldi ég rétt að ákveða þetta nokkru skýrar, þannig að ekki yrði um deilt.
Þá er einnig í 6. gr. frv. ákvæði um keðjuverzlun sérstaklega. Af þeirri reynslu, sem fengizt hefur um gildandi lagaákvæði viðvíkjandi keðjuverzlun, er ljóst, að gera þarf á þeim fyrirmælum nokkrar umbætur, og þykir mér því rétt að vekja athygli þeirrar n., sem kann að fá mál þetta til meðferðar, á þeim örðugleikum, sem þau ákvæði skapa í viðskiptalífinu. Síðan takmarkaður var innflutningur á járnvörum, veiðarfærum og sér í lagi önglum, hafa þeir innflytjendur, sem áður seldu í heildsölu, neitað að selja nema með smásöluverði, þannig að þau fyrirtæki úti á landi, sem áður seldu þessar vörur til þess m. a. að fullnægja eftirspurninni, hafa annaðhvort orðið að hætta að selja þær eða orðið að selja þær sér í óhag. Heildsalarnir hafa notfært sér eftirspurnina og selt í heildsölu með smásöluálagningu allt, sem þeim hefur verið leyft að flytja inn. Þessu þarf nauðsynlega að breyta á þann hátt að setja sérstök ákvæði, er tryggi, að þeir landshlutar verði ekki afskiptir, sem með engu móti geta flutt inn þessar vörur beint. Ég vildi minnast á þetta, þar sem mér er kunnugt um þau óþægindi og það tjón, sem ríkjandi fyrirkomulag í þessum málum veldur ýmsum atvinnurekendum úti á landsbyggðinni.
Hv. þm. Seyðf. (HG) gat þess í ræðu sinni, að ákvæði um innlent afurðaverð ætti einnig að leggja undir þessa nefnd. Ég vil lýsa yfir því, að ég tel það rétta stefnu. Ég tel, að sem mest af verðlagsmálunum ætti að heyra undir þessa n. Á þann hátt fengist bezt heildaryfirlit yfir málin, auk þess sem ég teldi hana dómbærasta 5. verðlagsmálin í heild, ef vel tekst um mannaval í nefndina.
Með 15. gr. eru úr gildi numin l. nr. 28 29. maí 1942, um dómnefnd í kaupgjalds- og verðlagsmálum, og l. nr. 118 2. júlí 1940, um verðlag. Ég vildi því mega beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvmrh. og hv. þm. Seyðf., sem forsvarsmanns fyrir Alþfl., hvort nú sé ekki kominn tími til að hugsa um afnám þeirra húsaleigul., sem sett voru á sínum tíma af þáv. félmrh. Mér skilst, að þegar búið er að taka stífluna úr með þessum l., sé það ekki réttmæt krafa til þeirra, sem lúta verða húsaleigul. sér til stórtjóns og alls konar óþæginda, að þeir einir haldi áfram að sýna þegnskap. Mér er það ljóst, að margir af þessum mönnum eru þannig settir, að þetta er þeirra eina tekjulind, a. m. k. eldri menn, og kannske er það þeirra eini styrkur að eiga húskofa, sem gefur eitthvað af sér, en þeir geta engu ráðið um það, hvað þeir fá í tekjur af húsum sínum, meðan þessi l. standa.
Þá vildi ég gera þá fyrirspurn til hæstv. atvmrh., hvað ríkisstj. hugsi sér í dýrtíðarmálunum, þar sem hún talar um í grg., að það verði með öllum ráðum að sporna við dýrtíðinni. Það kemur ekki neins staðar fram hér í grg., hvaða ný ráð skuli tekin upp, en það er vitanlega öllum stéttum þjóðfélagsins áhugamál, að einhver ráð verði tekin upp til þess að forðast það, að dýrtíðin flæði yfir landið. Enda er það krafa þjóðarinnar, að einhverjar hömlur verði settar í stað þeirra, sem verið er að taka í burtu með afnámi þessara l.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða málið frekar á þessu stigi.