28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (961)

8. mál, úthlutun bifreiða

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :

Hér liggja fyrir þrjár brtt., ein frá hv. 2. þm. Reykv. (EOl) á þskj. 88, önnur frá meiri hl. allshn., á þskj. 108, og hin þriðja frá minni hl. allshn., á þskj. 143. Það hefur orðið að samkomulagi, að þær verði teknar aftur til síðari umr., ef hægt yrði að koma málinu þangað umræðulaust eða umræðulítið.