01.09.1942
Sameinað þing: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (982)
17. mál, neyzluvatnsskortur kauptúna
Gísli Jónsson:
Í sambandi við þetta mál vil ég geta þess, að ég veit ekki, hvort hv. flm. er það kunnugt, að vegamálastjóri hefur haft mikið með þessi mál að gera í sambandi við brunamál, og mun ávallt hafan viljað aðstoða hvert kauptún og hvern hrepp í þéttbýli til að koma upp vatnsleiðslu í sambandi við brunahættu. Hygg ég, að viðkomandi hreppar hafi getað fengið þar allar upplýsingar og aðstoð, eða hér um bil það sama sem farið er fram á í þessari þáltill., að undantekinni ábyrgð á fjárframlögum.
Hins vegar þótti mér merkilegt, að hv. flm. skyldi minna á það, að þetta væri sérstaklega gert fyrir þéttbýlið. Því að það er vitanlega miklu meiri nauðsyn að gera þetta fyrir dreifbýlið. Einstaklingarnir í sveitunum hafa engin tök á því að láta á sinn kostnað rannsaka fyrir hvert heimili, hvernig þeir bezt gætu fengið vatnið heim, sem er ákaflega mikið nauðsynjamál ekki sízt á tímum, þegar vinnukraftur á heimilunum er lítill og minnstur innan húss. Sjálfir hrepparnir, og sérstaklega kaupstaðirnir, hafa miklu meiri tök á þessu í alla staði. Og þess vegna þyrfti málið að takast upp á miklu breiðari grundvelli heldur en gert er í þessari till., ef það ætti að vera það stórmál, sem hv. flm. 1ýsti. En það er þingheimur að sjálfsögðu sammála um, að það er, þegar það er tekið fyrir allt landið.