11.08.1942
Sameinað þing: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (989)
13. mál, vöru- og farþegaflutningar með ströndum fram og flugleiðis
Flm. (Eysteinn Jónsson) :
Ég geri ráð fyrir, að öllum hv. þm. sé kunnugt um hina miklu erfiðleika, sem eru nú á vöru- og farþegaflutningum með ströndum landsins. Það er sérstaklega tilfinnanlegt með vöruflutninga, því að mikið skortir á, að menn geti flutt þær út til hafna landsins, jafnótt og þeirra er þörf. Það er enn fremur kunnugt, að miklum erfiðleikum er bundið að ráða bót á þessu af ýmsum ástæðum. Nú upp á síðkastið hefur mjög dregið úr afkastagetu strandferðaskipa ríkisins, jafnframt því, sem Eimskipafélag Íslands getur nú eigi sinnt smáhöfnunum eins og það gerði fyrir stríðið, af eðlilegum ástæðum. Í eigu landsmanna er aftur á móti nægur báta- og skipakostur til þessara þarfa, ef hann er tekinn í þjónustu ríkisins, en það hefur eigi verið gert sem skyldi, og fyrir því liggja fyrst og fremst tvær höfuðástæður, þ. e. a. s. í fyrsta lagi yrði þessi skipakostur mikill fjárhagslegur baggi fyrir ríkið, og í öðru lagi mun vera erfitt að fá þessa báta og skip til þessara þarfa, þar eð eigendur þeirra telja gróðarvænlegra að gera þau út í ýmislegt annað.
Till. þessi fer fram á, að Alþ. skori á ríkisstj. að gera ráðstafanir til þess að afla nægilegs báta- og skipakosts til þess að annast vöru- og farþegaflutninga með ströndum fram. Fyrsta skrefið í þessa átt yrði að leita samninga við báta- og skipaeigendur, en ef það gengi ekki, þá að ríkisstj. fengi heimild Alþ. til þess að taka nægilegan skipakost í þjónustu ríkisins og að leigan yrði þá ákveðin eftir mati, því að það verður ekki umborið til lengdar, að vörur komist ekki út um land, þegar vitað er, að um nægan skipa- og bátakost er að ræða. Nú er vitað mál, að allmargir bátar eru í þjónustu hinna erlendu setuliða hér, og er alveg óviðunandi, að báta skuli skorta til strandferða, þegar svo er háttað málum.
Ég vænti þess, að hv. Alþ. taki þessari till. vel, og ég vænti þess enn fremur, að hæstv. ríkisstj. geri allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að leysa málið, ef ekki með frjálsum samningum, sem að sjálfsögðu væri bezt, þá með öðrum ráðum, og ég veit, að hér á Alþ. eru margir menn, sem mundu vilja styðja hana til þess að nota frekari heimildir, ef þær leiðir, sem farið er fram á í þáltill., nægðu ekki.