11.08.1942
Sameinað þing: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (993)

13. mál, vöru- og farþegaflutningar með ströndum fram og flugleiðis

Flm. (Eysteinn Jónsson) :

Hæstv. atvmrh. minntist á, að hann vænti sér mikils af samningum við Eimskipafélag Íslands, en ég vil beina því til hæstv. ráðh. að vænta sér ekki of mikils af því. Skip Eimskipafélags Íslands hafa nóg að gera við aðdrátt nauðsynja til landsins, og finnst mér því, að fremur ætti að nota smærri skipin með ströndum fram. Að vísu bíða skipin lengi eftir afgreiðslu hér í Rvík, en mér finnst ekki eiga að nota þau í strandsiglingar þann tíma, heldur að keppa að því, að biðin verði sem stytzt, því að það er illt að hugsa til þess, að skipin skuli þurfa að bíða dögum saman eftir afgreiðslu, þegar þau koma óraveg með nauðsynjavörur. Mér er sagt, að skip Eimskipafélags Íslands fari nú aðeins 4–5 ferðir til Ameríku á ári.

Mér er kunnugt um, að fyrri stj. hafði í undirbúningi samninga við setuliðið um, að greitt yrði fyrir afgreiðslu íslenzkra skipa í erlendum höfnum, sömuleiðis að setuliðið hefði sínar sérstöku bryggjur hér til fyrirgreiðslu skipa sinna hér heima. Ég vil nú nota tækifærið og gera þá fyrirspurn til hæstv. atvmrh., hvað þessum málum líði, því að losunar- og afgreiðslutafir skipanna eru óþolandi ástand. Reynt hefur verið að bæta úr þessu með því að láta skipin hafa fleiri endastöðvar hér heima en Rvík, en ekki bætzt úr nema að litlu leyti. Hverjar eru fyrirætlanir stj. um breyt. á þessu?

Hæstv ráðh. taldi í ræðu sinni svartari horfur

á því en nokkru sinni fyrr, að leiguskip fengjust eða erlent skipsrúm, svo að okkur veitir sannarlega ekki af að nota skipakost okkar sem bezt. Ég held því, að ekki sé hægt að vænta þess, þótt fleiri endastöðvar yrðu hér en Rvík, að Eimskipafélag Íslands geti innt af hendi vöruflutninga með ströndum fram, heldur verði ríkið að sjá um það og skipaútgerð þess. Hæstv. ráðh. sagði, að stj. hefði reynt að afla leigubáta til þessa, en með litlum árangri.

Ég bendi sérstaklega á, að þangað stefnir, að ekki má við svo búið sitja. Það getur farið svo, að gera verði opinberar ráðstafanir til þess að fá skipin, t. d. semja við setuliðið, er hefur marga báta í flutningum, um takmarkaða tölu þeirra báta, eða þá beint, að stj. fái heimild til þess að taka bátana leigunámi, og leigan verði greidd eftir mati. Ég legg þó ekki til, að þessi leið verði farin, fyrr en gerð hefur verið úrslitatilraun til þess að leysa málið frjálst. Ég bendi á þetta til athugunar fyrir stjórnina.

Að lokum eitt enn þá. Öllum er augljóst, að flutningar með ströndum fram aukast með haustinu, t. d. flutningar síldarmjöls. Ég vek því máls á því, hvort ekki ætti að undirbúa þetta mál sérstaklega með því að fá síldveiðiskipin til þess að flytja hvert sinn farm um leið og þau hætta veiðum og hverfa heim. Þetta er aðeins lausleg bending. Það, sem ég hef aðallega bent á, er það, að nú verði að grípa til sérstakra úrræða. En hins vegar skil ég vel, að menn hafa hingað til veigrað sér við að beita þeim ráðstöfunum.