13.04.1943
Efri deild: 98. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. (Pétur Magnússon):
Eins og við mátti búast, hefur teygzt úr þessum umr., og er nú liðið á daginn. Ég mun því reyna að haga svo orðum mínum, að ég lengi ekki umr., enda vil ég segja það, að það hefur ekki margt komið fram í þessum umr., sem gefi beina ástæðu til andsvara. Umr. snúast mjög upp í krit milli hinna svokölluðu vinstri flokka í þinginu. Þeir eru í tilhugalífinu, og það er ekki að undra, þótt einn flokk gripi eins konar afbrýðissemi, þegar hann er hræddur um ótrúmennsku hjá hinum. En ég held, að þeir verði að hugga sig við það, að það er oft gott í tilhugalífinu, að snurða hlaupi á þráðinn og bara skerpir kærleikann.
Hv. fyrri þm. Eyf. byggði mótmæli sín gegn till. n. á því, að málinu væri teflt í tvísýnu, ef það væri sent á milli d. Þessi hv. þm. kvaddi sér hljóðs hér í gær og hélt því þá mjög á lofti, að þessi d. yrði að sýna af sér þá röggsemi að láta málið ekki fara hér í gegn án þess að gera við það nokkrar verulegar athugasemdir, og hún yrði að láta skeika að sköpuðu um það, hvernig málið færi. Ég vil segja það, að hv. þm. er ekki í dag eins sár fyrir virðingu d. eins og þá, en hins vegar verð ég að segja það, að ég get ekki séð, eins og málið liggur fyrir, — þar sem um það virðist vera að mestu leyti samkomulag allra flokka í þinginu um afgreiðslu málsins, að því sé teflt í nokkra tvísýnu, þótt það sé sent aftur. Það ætti að geta komizt þangað í kvöld, og ætti þm. þeirrar d. ekki að vera vorkunn, þótt þeir þyrftu að leggja á sig vökur eina nótt, þar sem þeir eru búnir að halda málinu svo lengi.
Þá eru hin mótmælin, sem hv. 2. þm. Eyf. hreyfði gegn till. n. Hann sagði, að með till. væri gerður mismunur á stéttunum, þar sem aðeins væri lækkað afurðaverð til bænda, en launþegar ættu ekki að fórna neinu. Ég skil ekki, hvernig hv. þm. getur fengið þetta út úr till. n. Eins og frv. mundi lita út, eftir að till. fjhn. hafa verið samþykktar, er ekki hægt að segja að bændur eða launþegar eigi að fórna neinu. Launþegum er ætlað að njóta uppbótarinnar án þess að sleppa nokkru, sem þeir hafa haft, og bændum er ætlað að fá fullar uppbætur í samræmi við vísitölu á hverjum tíma. Það er því misskilningur hjá hv. þm., að verið sé að gera upp á milli stéttanna með þessum till. Það má sjálfsagt til sanns vegar færa það, sem sagt hefur verið, að breyt. skipti ekki mjög miklu máli, en ég vil minnast á þá breyt., að 3 millj. kr. skulu samkv. till. okkar ganga beint til alþýðutrygginganna í staðinn fyrir að ganga í sérstakan sjóð. Á þessu er sá mikli munur, að það getur ekki liðið á löngu þangað til úr ríkissjóði þarf að leggja fé til alþýðutrygginga, og ef þessi upphæð er lögð þangað nú, ætti það að samsvara því, að hún hefði verið spöruð. Hins vegar er allt í óvissu um það, sem ætlazt er til í 6. gr., a.m.k. hvort ríkissjóði kemur það að nokkru gagni. Þá talaði þessi þm. um það, að frv. væri spillt með því að fella úr því 7. gr. þess, enda þótt hann játaði, að hún ætti ekki heima í þessu frv., heldur ætti að fellast inn í skattalöggjöfina. Þetta gerði hv. þm. Str. og mjög að umræðuefni og lagði á það aðaláherzlu í ræðu sinni, en því verður ekki móti mælt, að 7. gr. er, eins og frv. er núna, því algerlega óviðkomandi. Hún gerir ekki ráð fyrir neinum þeim ráðstöfunum, sem séu til lækkunar dýrtíðinni, og yfirleitt stendur sú fjáröflun, sem ráðgerð er þar, ekki í neinu sambandi við dýrtíðina. Hins vegar álíta þessir þm., að ein af mestu þjóðarnauðsynjunum sé að hækka skattana, án þess þeir hafi gert sér grein fyrir því, til hvers ætti að verja þessu fé, og ég verð að segja það, að það liggur við, að það sé furðulegt að hlusta á það, þegar þessir þm., sem tilheyra þessum flokki, sem er langíhaldssamastur í landinu — að heyra þá hella sér yfir kommúnistana fyrir það, að það sé ekki hægt að nudda þeim til þess að greiða atkvæði með nógu hárri skattalöggjöf. Það var þó annað að heyra á þeim, þegar þessi núgildandi skattalöggjöf var borin fram af þeirri stjórn, sem þessi hv. þm. var forsrh. í, þegar hann sjálfur og flokksbróðir hans, sem var fjmrh., töldu að nú væri svo langt gengið í skattalöggjöfinni, að lengra yrði ekki gengið, eins og vissulega var rétt. Það er vissulega rétt, að ef við ætlum að byggja þjóðfélag okkar á „kapítalistisku“ skipulagi, er ekkert vit í að hafa skattana eins háa og þeir eru, hvað þá hærri, og þetta játa menn úr öllum flokkum, jafnvel þeir, sem eru mótfallnir því kapítalistiska þjóðskipulagi, og það er alveg rétt, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, að það er ekkert vit í því að bera fram nýja skattalöggjöf, nema um leið sé sýnt fram á, til hvers þarf að nota féð, en hv. þm. Str. virðist vera kominn á þá skoðun, að skattaálögur einar út af fyrir sig séu einhver blessun fyrir þjóðfélagið og björg, og það virðist að hv. þm. Str. sé ekki einn um þessa skoðun, heldur virðist hann og skoðanabræður hans vera búnir að telja allstórum hluta af þjóðinni trú um, að þetta sé svo.
Um efni 7. gr. er það að segja, að það, sem ég hef mest út á hana að setja, er ekki það, að ósæmilegt er að miða ekki við flokka og stéttir, heldur við einstaklinga. En það er ekkert aðalatriði. En það, sem ég hef mest út á hana að setja, eru ákvæðin um hámarksálagningu.
Eftir að löggjafarvaldið hefur hvatt til þess undanfarið að breyta öllum stórrekstri í hlutafélagarekstur með því að veita skattívilnanir með tilteknum skilyrðum, tel ég það fullkomlega ósæmandi að koma nú aftan að og svipta fyrirtækin öll þeim hlunnindum eða viðhalda sífelldum ótta um, að það verði gert. Það er e.t.v. enn meir öryggisleysið og óttinn heldur en sjálfar aðgerðirnar, sem lamað hafa framtak manna hér til atvinnurekstrar, óttinn við það, að ef vel gengi, yrði allt aftur af þeim tekið.
Ég skildi ekki alveg fullyrðingar hv. þm. Str., þegar hann sagði, að öðruvísi hefði horft 1942 en nú, þá hefði dýrtíðinni verið haldið í skefjum og því siður ástæða til þess en nú að hafa skatta háa. Áleit hann, að meðan rekstrarkostnaður var ekki orðinn eins hár og nú og gróði því miklu meiri en nú, hafi síður þurft að skattleggja hátt, en nú þurfi þess, þegar þetta er svo breytt, að mörg fyrirtæki bera sig að vísu sæmilega, en örðugleikar vaxa og eru miklir fram undan. Ég hélt, að varlegar þyrfti að fara í skattlagningu, þegar misvel gengur og hjá sumum fyrirtækjum erfiðlega. Um. 7. gr. er það annars að segja, að við vorum sammála um það í n., að í slíkum lögum ætti hún ekki heima. Og það, sem fyrir mér vakti, þegar ég lagði nokkra áherzlu á, að hún félli niður, var, að atvinnureksturinn þyrfti ekki að búa við þann hringlandahátt, sem verið hefur í skattalöggjöf. Ekki er ástæða til að svara hv. þm. Str. um allt, sem hann ræddi um, og sumt litt skiljanlegt. Það liggur ekki fyrir, að ríkissjóður sé í þeirri fjárþröng, að slíkra stórbreytinga sé þörf. Ég get fallizt á, að ríkissjóður hafi þörf fyrir þann skatt, sem ákveðinn er í 1. gr., en lengra vil ég ekki ganga nú.
Hv. þm. Barð. hefur tekið aftur allar brtt. sínar til 3. umr., og ræði ég þær því ekki nú.
Að lokum vildi ég minnast á eitt atriði, sem hv. þm. kom tvívegis að í sambandi við 7. gr. Með því að fella hana burt er gengið nær nokkrum minni skattgreiðendum en ef hún stæði óbreytt, því að gert er ráð fyrir, að skattfrjálsu tillögin til nýbyggingarsjóða megi hækka nokkuð frá því, sem verið hefur. Ég get huggað hann með því, að n. var áður búin að ræða þetta og hugsar sér að koma með brtt. fyrir 3. umr. þess efnis, að þær ívilnanir rýrni á engan veg. Það gleður mig, að hann muni ljá því fylgi og beita áhrifum sínum í Framsfl. til þess, að hann fylgi því, og sjái til þess, að frv. tefjist ekki sakir þess atriðis, er það kemur aftur í Nd.
Það hefur verið mikið rætt, að í frv. felist ekki nein lausn dýrtíðarmálanna. Enginn hefur haldið því fram, að vandræðin, sem dýrtiðin og verðbólgan hafa leitt af sér, séu leyst með frv. En tilraun er þar gerð til að leysa a.m.k. eitt hinna stóru vandamála, finna hlutfall milli verðlags og kaupgjalds. Þó að það sé dregið í efa, að hún beri árangur, sérstaklega af hv. þm. Str., sem gerir varla ráð fyrir að búnaðarfélagið fallizt á lækkun útsöluverðs á innlendum afurðum, þykir mér ólíklegt, að svo vitrir menn og góðgjarnir sem þar ráða mundu sjá sér fært að setja sig móti lækkun, er ríkið bætir bændum upp, eða vinna á annan hátt móti því, að ákjósanlegur árangur náist. Ég vil treysta á þegnskap þeirra. Árangur er annars mest undir því kominn, hvort þeir menn, sem að atvinnurekstrinum standa, vilja fá verðlagið niður eða ekki. Ef stærstu stéttir þjóðfélagsins vilja viðhalda dýrtíðinni, er engin leið til að lækka hana, fyrr en neyðin ein gerir það. Ég vil vonast til þess, að menn horfi þar ekki aðeins á stundarhag, heldur hugsi um, hvernig fer, ef dýrtíðin helzt og fer þá sennilega hærra, ef ekki er að gert.