13.04.1943
Efri deild: 98. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (1027)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Bernharð Stefánsson:
Ég skal reyna að verða við tilmælum hæstv. forseta að gera mitt til, að umræðum þessum verði lokið fyrir matmálstíma. Síðast þegar ég talaði, var ég að ræða við hv. 5. þm. Reykv. og hv. 3. landsk. Ég get látið þær viðræður niður falla, því fremur sem ég varð að bregða mér frá og veit ekki, hvernig svör þeirra hafa fallið. Það verð ég þó að segja, að af þeim umr., sem ég hef hlýtt á, finnst mér þeir berir að því, að hin stóru orð, sem þeir hafa viðhaft bæði í blöðum og á mannfundum, hafi verið ryk, sem kastað var framan í alþýðu.
Út af þeirri skriflegu brtt., sem komin er fram frá hv. 5. þm. Reykv. um það, að verð á mjólk úti um land lækki hlutfallslega við það, sem verð á mjólk lækkar í Rvík, vil ég benda á, að þetta er alls ekki sanngjarnt. Það er öllum kunnugt, að kaupgjald úti um land hefur hækkað hlutfallslega meira en í Rvík og tilkostnaður við búrekstur hækkað hlutfallslega meira en hér í nágrenni Rvíkur. Það kann að vera, að það væri sanngjarnt, að mjólk úti um land lækkaði eitthvað meira en gert er ráð fyrir í frv., en það liggja engar upplýsingar fyrir um, hvað það ætti að vera mikið, og ég mun því gr. atkv. á móti till. hv. 5. þm. Reykv. Segi ég þó ekki, að ég mundi ekki vera fús til umtals um lækkun á mjólkurverði utan Rvíkur, á borð við það, sem í till. er ákveðið, ef fyrir lægju upplýsingar, sem hægt væri að byggja á.
Ég hef frá upphafi tekið fram þá afstöðu mína til þessa frv. hér í hv. d., að ég er yfirleitt á móti því, að gerðar verði á því breyt. En það er nú yfirlýst hér í hv. d. að þrír flokkar, sem hafa mikinn meiri hl., hafi gert einhvers konar samning um að gera breyt. á því, og má því búast við, að við því verði ekki spornað. Frv. hljóti því að ganga til Nd., hvort sem það hrekst þá meira milli d. í nótt. Út af þessu vil ég lýsa einni brtt. og vænti þess, að hv. forseti leiti afbrigða fyrir henni. Samt sem áður lýsi ég yfir því, að ég mun taka þessa brtt. aftur við 2. umr. málsins, þar til séð verður, hvort það er ætlun d. að breyta frv. eða ekki. Þessi brtt. sem ég ætla að leyfa mér að leggja fram, er að undanþiggja smáútveginn þeim auknu skattabyrðum, sem mundu leiða af því, ef frv. yrði samþ. óbreytt eða með þeim breyt., sem meiri hl. fjhn. hefur gert og er því við 1. gr. frv.
Ég lofaði hæstv. forseta því að lengja ekki mál mitt og skal því ekki færa fram mörg rök, en leyfa mér að vísa m.a. til ræðu hv. frsm. áðan og annarra, sem hér hafa talað. En þessi brtt. er þá þannig, að aftan við 1. gr. bætist ný mgr. svo hljóðandi:
„Skattfrjálst nýbyggingarsjóðstillag, sem einstaklingum og sameignarfélögum, er stunda sjávarútveg sem aðalatvinnurekstur, er heimilað samkv. g-lið 14. gr. laga nr. 20 1942, skal hækka í 331/3% af hreinum árstekjum þeirra af útgerð. Þessi hækkun skal þó eigi koma til greina hjá þeim einstaklingum eða sameignarfélögum, sem lagt hafa í nýbyggingarsjóð 200000 kr. eða þar yfir. Ákvæði þessi koma til framkvæmda við álagningu skatta á tekjur ársins 1942.“
Hv. þm. Barð. talaði áðan um það, að það væri ekki rétt að koma aftan að skattþegnum landsins og breyta skatti, sem l. landsins gera ráð fyrir, þannig að hann verkaði aftur fyrir sig. Ég veit það má færa ýmis rök fyrir þessu, og býst við, að það verði ekki að því fundið frá þessu sjónarmiði, þótt þessi till. sé samþ., því að ég veit ekki til, að menn áliti illa að sér farið, þótt skattar séu lækkaðir. Þetta er að vísu breyt. frá gildandi l., en þannig löguð breyt., að ég hygg, að enginn, sem hún viðkemur, verði á móti henni.
Ég afhendi því hv. forseta þessa till. með þeirri ósk, að hann láti prenta hana milli umræðna, en ég ætlast ekki til, að hún sé borin upp fyrr en séð verður, hvort breyt. verða gerðar á frv. eins og það kom frá Nd., heldur verði henni frestað.