25.01.1943
Neðri deild: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (105)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Fyrir nokkrum dögum bar hv. 2. þm. N.-M. fram fyrirspurn til ríkisstj. um nokkur atriði, og mér er ánægja að geta orðið við því nú að gefa svör við þessum fyrirspurnum.
Í fyrsta lagi var spurt, hverjar hafi orðið tekjur þær, sem hafa orðið vegna l. um aðgerðir gegn dýrtíðinni. — Samkv. bráðabirgðauppgjöri hafa tekjur orðið þannig, að skattauki er þegar innborgaður 803298 kr., og 10% útflutningsgjald er áætlað, að muni nema 1500000 kr. Þetta hvort tveggja eru 2 milljónir 303 þúsund og nokkur hundruð kr.
Í öðru lagi var spurt um, hvað ég hefði greitt út til lækkunar á dýrtíðinni samkv. sömu lögum. — Í fyrsta lagi hefur verið greitt til lækkunar á kolum til kolakaupmanna kr. 157407.05. Í öðru lagi var greitt til lækkunar á fiski til fisksala kr. 37696.35. Í þriðja lagi hefur verið greitt til lækkunar á smjörlíki til smjörlíkisverksmiðjanna kr. 329128.30. Í fjórða lagi var greitt til lækkunar á tilbúnum áburði til áburðarverzlunar ríkisins 1 millj. kr. Það er ekki endanlega búið að ganga frá reikningum áburðarsölunnar, svo að ekki er vitað, hvort upphæðin kann að breytast örlítið til hækkunar eða lækkunar. — Þessar greiðslur nema samtals kr. 1524231.70. Einnig var spurt, hvað hefði verið greidd mikil uppbót á framleiðsluvörur bænda. — Greiðsla samkv. þáltill., sem gerð var 23. maí 1942, nemur: Í fyrsta lagi á gærum, framleiddar 1941, kr. 2096444.41. Í öðru lagi á garnir, framleiddar 1941, kr. 398853.18. Ógreitt er, nú. þegar útreiknað, fyrir ull framleidda 1941, — miðað við það markaðsverð, sem nú er hægt að fá fyrir ullina —, áætlað kr. 1991908.58. Greiðsla samtals, samkv. þessari nefndu þáltill., kr. 4487206.17.
Greiðsla samkv. þáltill. 31. ág. 1942 er áætluð, en ekki innt af hendi, — miðuð við það markaðsverð, sem nú er bezt vitað um —, kr. 5332441.00. Gærur eru á sama hátt áætlaðar kr. 8781696.00. Greiðsla vegna kjöts er áætluð kr. 6000000.00. Þetta, þannig áætlað, gerir samtals 20 mill j., 114 þús. og nokkur hundruð kr.
Ég vil geta þess, að þessi áætlun, sem ég hef frá skýrt, er miðuð við markaðsverð, sem álitið er, að sé réttast nú. En að sjálfsögðu getur það breytzt, áður en til endanlegrar greiðslu kemur. Og líka vil ég geta þess, að ekki er endanlega gengið frá því til fullnustu, hvernig þetta uppgjör fer fram.
Þá er líka fyrirspurn um það, hversu mikið mundi verða greitt samkv. þáltill. 1942, um greiðslu til að lækka verð á síldarmjöli. Þetta liggur ekki fyrir. Það er ekki búið að greiða nema örlítið af þessu enn, en þykir sennilegt að áætla, að þessi upphæð muni nema 1804000 kr. Þó getur sú upphæð breytzt eitthvað til hækkunar eða lækkunar, sennilega frekar til lækkunar.
Þá er enn spurt um, hvað ríkisstj. geri ráð fyrir, að kosta muni í útgjöldum sú krónulækkun, sem gerð var um áramót á kjöti í innanlandssölu. Samkv. upplýsingum kjötverðlagsn. eru um áramótin á að gizka 4 þús. tonn af kjöti í landinu. Það er talið sennilegt, að ef ekki hefði verið neitt gert til þess að auka kjötsöluna innanlands, mundi á að gizka helmingur af þessu hafa verið eða verða fluttur út og hinn helmingurinn seldur hér heima. Þannig mætti sennilega gera ráð fyrir, að um 2 þús. tonn hefðu farið á innanlandsmarkað og kostað þannig ríkissjóðinn 2 millj. kr. Nú er það von sumra, m.a. mín von, að kjötneyzlan í landinu aukist og því minnki útflutningur, og vaxi sá hlutur, sem seldur er innanlands. En af því leiðir, að búast má við, að heildarupphæðin, sem fæst fyrir kjötið, verði hærri, eftir núverandi útliti um verðlag erlendis, og verði því af breytingunum hagnaður fyrir ríkissjóð.
Loks er spurt um smjörframleiðsluna. Ég skal upplýsa, að á árinu 1942 er talið, að framleiðsla smjörs í mjólkursamlögum, rjómabúum og smjörsamlögum hafi numið sem næst 142 tonnum. Og smjör, framleitt á heimilum bænda, mundi nema ca. 120 tonnum. Sú tala er að vísu mjög ágizkuð, því að ekki liggja fyrir neinar skýrslur enn. En þetta gerir þá samtals 262 tonn. Um hagnaðinn af innfluttu smjöri er ekki, sem stendur, hægt að upplýsa, hve miklu nemur, því að enginn veit, hve mikið hefur verið flutt inn. En mér hefur reiknazt svo til, að gera mætti ráð fyrir álíka miklum hagnaði á hvert kíló smjörs, sem flutt er inn í landið og selt, eins og niðurborgun ríkissjóðs nemur á kíló af smjöri, framleiddu hér.
Með þessum svörum álit ég, að ég hafi látið háttv. þingmanni og öðrum þm. í té þær upplýsingar, sem beðið var um.