13.04.1943
Neðri deild: 101. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Eysteinn Jónsson:
Ég sagði það hér áðan, að ég gerði ráð fyrir því, að menn gætu orðið sammála um, að óþarfi væri að gera hv. 2. þm. Reykv. frekari skil en ég gerði þá, og skoraði ég á hv. 2. þm. Reykv. að viðurkenna þetta. Ég álít, að sú viðurkenning sé nú fengin, þar sem hv. 2. þm. Reykv. kom sér algerlega hjá því að tala nokkuð um það ágreiningsefni, sem hér liggur fyrir, en fór algerlega út í aðra sálma, og ástæðan til þess, að ég geri þessa athugasemd, er einvörðungu sú, að hann dró inn í umr. atriði, sem eru sjálfstæð og koma ekki við því, sem rætt er um.
Hann var að tala vítt og breitt um vinstri samvinnu og sagði, að lítið dæmi um vinstri samvinnu væri það, að hv. þm. Str. hefði dregið að gefa út nál. um skattadómstól. Ég veit ekki hvernig þetta er, en ég hefði óskað þess, að málið hefði komið fram, og talaði um það við mann úr flokki mínum, að mér þætti það dragast nokkuð lengi. En ég veit það, að þm. sósíalista, sem hafa svo mikinn áhuga fyrir þessu máli, hafa ekki svo mikið sem rumskað út af því, enda orðið of seint að afgreiða það, þegar hér er komið, ef um það yrði nokkur ágreiningur. Ég held, að það sé rétt fyrir hv. 2. þm. Reykv. að minnast ekki á þetta.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að samvinnuaðferð sósíalista væri ákaflega einföld. Hún væri sú, að ef ekki væri gengið inn á kröfur flokksins um bætur til handa verkalýðnum, slær flokkurinn í borðið og leitar annarra úrræða Hver eru svo þessi önnur úrræði? Þau eru í því fólgin, að þegar Sósfl. líkar ekki, hvernig víss formsatriði eru afgr. í Nd., notar hann það sem átyllu til þess að ganga á móti einu aðaláhugamáli verkalýðsins, skattlagningu stríðsgróðans. Þetta eru úrræðin, sem þeir hafa, þegar ekki er gengið inn á. það, sem þeim þóknast.
Hv. 2. þm. Reykv. sagði hér þau eftirtektarverðu orð, að það hefði komið fram í fjhn., að hægara hefði verið að ná samkomulagi a.m.k. við annan fulltrúa Sjálfstfl. en við fulltrúa Framsfl. og fá fram það, sem Sósfl. vildi. Þetta stafar einfaldlega af því, að fulltrúar Alþfl. og Sósfl. bitu sig í það í upphafi að knýja fram dýrtíðarlækkun með því einu, fyrst og fremst, að afurðir bænda lækkuðu, en létu sér í miklu léttara rúmi liggja um skattlagning stríðsgróðans. Hann talaði um starfið í 9 manna nefndinni. Réttast væri fyrir hann að slíta þar ekki einstök atriði úr sambandi. Saga hennar verður sögð á sínum tíma og ekki víst hún verði honum þá til geðs. Það er til marks um einlægni fulltrúa fl. í n., að þegar þeir höfðu raunverulega „saboterað“ starf hennar langan tíma og hún ætlaði að taka það upp af nýju, kom í Þjóðviljanum, blaði flokksins, mikil ritgerð um, að eina leiðin til samkomulags sé, að hinir flokkarnir fallist alveg á stefnu Sósfl. Það er sönnun þess, að fl. hefur aldrei meint neitt með öllu skrafi sínu um vinstri samvinnu. Þarna hefur Sósfl. komið barnalega upp um sig.