15.12.1942
Neðri deild: 16. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)

61. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur í janúar 1943

Flm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti — Það hefur raunar verið sýnt síðan þetta þing kom saman, að ekki mundi unnt verða að afgreiða fjárl. fyrir áramót. Þarf ég ekki að fjölyrða um það mál, því að öllum hv. þdm. er það kunnugt. Ég mun því láta nægja að vísa til grg. þeirrar, sem fylgir þessu frv., og óska þess, þar sem það er samþ. af fjvn. að beita sér fyrir þessu frv. — að vísu ekki á fundi í n., af því að það var ekki hægt að koma því við -, að frv. verði látið ganga til 2. umr. án athugunar í n.